Sumarstörf 2020

Umhverfi Atvinnumál

""

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um sumarstörf hjá Reykjavíkurborg.

Hægt er að sækja um margvísleg störf sem snerta daglegt líf borgarbúa með ýmsum hætti með það að leiðarljósi að gera Reykjavíkurborg að lifandi og fallegri borg sem veitir borgarbúum á öllum aldri þjónustu.

Sumarstörfin eru fyrir 17 ára og eldri en misjafnt getur verið eftir störfum hvaða aldurstakmark á við. Almennt þurfa umsækjendur að hafa náð 20 ára aldri til þess að vera ráðnir leiðbeinendur á sumarnámskeiðum eða við öryggisstörf. Hjá Vinnuskóla Reykjavíkur er lágmarksaldur leiðbeinenda 22 ár en aðstoðarleiðbeinenda 20 ár.

Umsóknarfresturinn rennur út þann 26. febrúar en byrjað verður að vinna með umsóknir eftir að umsóknarfresti lýkur.

Sækja um sumarstarf