Opnunartími Árbæjarlaugar og Vesturbæjarlaugar verður lengdur yfir sumartímann. Opið verður til 20.00 um helgar, en það er lenging um klukkustund frá því sem áður var.
Lengingin á opnunartíma verður í gildi yfir sumarmánuðina þrjá og hefst 1. júní næstkomandi. Laugardalslaug verður eftir sem áður opin alla daga til kukkan 22.00. Vesturbæjarlaug og Árbæjarlaug verða opnar til klukkan 20.00 og í Breiðholtlaug og Grafarvogslaug verður opið til klukkan 19.00. Opnunartími Sundhallar Reykjavíkur er óbreyttur.
Með breytingu á opnunartíma er komið til móts við borgarbúa sem ættu að geta nýtt sér þjónustu lauganna allt eftir því hvað hverjum og einum hentar.