Sumardagurinn fyrsti, fimmtudagurinn 20. apríl, verður haldinn hátíðlegur í öllum hverfum borgarinnar með lúðrablæstri, skrúðgöngum og hoppukastölum. Dagskrá verður á vegum frístundamiðstöðva, skátafélaga og íþróttafélaga og Dr. Bæk verður á þeytingi um borgina að undirbúa hjólin fyrir sumarið.
Hátíðarhöld í hverfum borgarinnar - sjá auglýsingu
Árbær
Kl. 9:00-11:00 verður frítt í Árbæjarlaug
Dr. Bæk verður á staðnum og býður öllum sem mæta með hjólin sín upp á ástandsskoðun.
Kl. 11:00 Skrúðganga leggur af stað frá Árbæjarlaug að Árbæjartorgi
Kl. 11:30 Sumarhelgistund í Árbæjarkirkju, sumarið sungið inn
Kl. 12:00–13:30 Sumarhátíð á Árbæjartorgi
Skemmtidagskrá í Árseli. Veitingasala,kynningar o.fl.
Hoppukastalar
Meistaraflokkar Fylkis leika við hvern við sinn fingur á battavelli Árbæjarskóla
Kl. 13:30–15:00 Dagskrá hjá skátafélaginu Árbúum, Hraunbæ 123. Veitingasala
Bústaðahverfi
Kl. 12:00 Víkingar grilla við Grímsbæ í boði 10-11.
Kl. 13:00 Skrúðganga leggur af stað að Bústaðakirkju með Skólahljómsveit Austurbæjar.
Fánaberar úr röðum Víkinga og skáta.
Kl. 13:30 Dagskrá í Bústaðakirkju; barnakórar kirkjunnar, línudans eldri borgara í Hæðagarði, ávarp Dóru Magnúsdóttur og Theodórs Guðmundssonar, söngatriði frá Bústöðum og Una Stefánsdóttir stígur á stokk.
Eftir samveru í kirkjunni er dagskrá í Víkinni með hoppukastala, víkingshlaupi, andlitsmálun, þrautum, myndasýningu leikskólanna og glæsilegu kökuhlaðborði.
Breiðholt
Kl. 13-16:00 Dagskrá við félagsmiðstöðina Hólmasel
- Sigurvegari í hæfileikakeppni frístundaheimilanna, Breiðholt got talent
- Guðrún Ýr Guðmundsdóttir, sigurvegari í söngkeppni Breiðholts
- Dans Brynju Péturs
- BMX strákarnir sýna dans
- Karitas, sigurvegari The voice
Skátafélögin Segull og Hafernir verða með dagskrá við Andapollinn.
ÍR kynnir starfsemi sína.
Grafarholt
Kl. 10:00 Framhlaupið ræst í Leirdalnum. Skráning hefst kl. 9:30 við Leirdalshúsið. Hlaupið er í tveimur flokkum 3 km og 5 km. Verðlaun fyrir 3 efstu sæti í hvorum flokki. Börn (12 ára og yngri) og fullorðnir (13 ára og eldri). Öll börn fá verðlaunapening.
Kl. 11:00 Dýrablessun í Guðríðarkirkju
Kl. 13:00 Skrúðganga, með lúðrasveit Grafarvogs og Grafarholts í broddi fylkingar, leggur af stað frá Sæmundarskóla að Guðríðarkirkju.
- Helgistund í Guðríðarkirkju
- Skemmtun úti og inni
- Hoppukastalar
- Andlitsmálning við Guðríðarkirkju
- Krotað á kirkjustétt - Krítað á kirkjustétt
Kl. 14:00 Jón Jónsson tónlistarmaður í Guðríðarkirkju
Kl. 14:30 Frambingó og kaffi- og veitingasala í Guðríðarkirkju til styrktar yngri flokkum Fram
Grafarvogur
Kl. 11:00 Skrúðganga frá Spöng að Rimaskóla. Skátafélagið Hamar og Skólahljómsveit Grafarvogs leiða gönguna
Kl. 11:30 – 14:00 Fjölbreytt dagskrá í og við Rimaskóla;
- Aron Hannes syngur
- Blaðrarar gefa blöðrudýr
- Atriði frá félagsmiðstöðvum og frístundaheimilum Gufunesbæjar
- Skólahljómsveit Grafarvogs
- Kynningar á sumarstarfi Gufunesbæjar, Fjölnis og fl.
- Hoppukastalar og leiktæki
- Andlitsmálun
- Veitingasala
Nánari upplýsingar á: www.gufunes.is, www.midgardur.is og http://fjolnir.is/
Háaleiti
Kl. 11:00-13:00 Frístundaheimili og félagsmiðstöðvar bjóða allri fjölskyldunni til veislu við hús Kringlumýrar, Safamýri 28. Fagnið sumrinu með okkur!
- Loftboltar
- Hoppukastali
- Skylmingar
- Léttar veitingar
Laugardalur
Kl. 12:30 Skátafélagið Skjöldungur leiðir skrúðgöngu frá Langholtskirkju að Dalheimum
Kl. 13-15:00 Dalheimar
- Grillaðar pulsur (+bulsur)
- Foosball frá skátunum
- Andlitsmáling
- Skylmó
- Frisbígolf
- Körfubolti
- Skotbolti
Miðborg og Hlíðar
Kl. 13 -15:00 Leikir, gleði og stuð á Klambratúni
- Bubblubolti - skráning á goo.gl/aRNAj2
- Folf og Stinger- frisbígolf og körfubolti
- Dr. Bæk mætir og veitir fría skoðun á öllum hjólhestum.
- Pylsur í boði á meðan birgðir endast
Hólavallakirkjugarður: Heimir B. Janusarson garðyrkjumaður leiðir göngu um garðinn kl. 10 -11:00
Sundhöllin er opin frá kl. 10 -18:00
Vesturbær
Kl. 12-14:00 Melaskóli
- Bubblubolti – skráning á goo.gl/aRNAj2
- Ratleikur um hverfið
- Hjólaleikfélagið – með þrautabrautir og hjólaleikni.
- Dr. Bæk mætir og veitir fría skoðun á öllum hjólhestum.
- Pylsur í boði á meðan birgðir endast
Hólavallakirkjugarður: Heimir B. Janusarson garðyrkjumaður leiðir göngu um garðinn kl. 10 -11:00
Vesturbæjarlaug – opin frá kl. 9 -18:00