Styttri vinnuvika hefur jákvæð áhrif á starfsfólk

Mannréttindi Velferð

""

Niðurstöður úr tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar hjá Reykjavíkurborg benda til jákvæðra áhrifa verkefnisins þó það birtist með ólíkum hætti á þeim starfsstöðum sem taka þátt.

Þegar á heildina er litið eru áhrif styttingarinnar jákvæðari heldur en fólk vænti í upphafi verkefnisins á öllum starfsstöðum borgarinnar sem tóku þátt nema í Laugardalslaug. Styttingin hefur haft jákvæð áhrif á andlegt og líkamlegt álag auk þess sem starfsánægja jókst á öllum starfsstöðum. Þó er talið nauðsynlegt að kanna áhrif verkefnisins betur yfir lengri tíma.

Frá og með síðasta hausti hafa um 300 manns tekið þátt í styttingu vinnuvikunnar hjá Reykjavíkurborg en tilraunaverkefninu verður haldið áfram til 1. nóvember 2017 á öllum starfsstöðunum fyrir utan Laugardalslaug.  Kanna þarf útfærslu og vinnufyrirkomulag í Laugardalslauginni betur áður en áfram verður haldið þar.

Stýrihópurinn leggur því til að tilraunatímabilið fyrir alla starfsstaðina fyrir utan Laugardalslaug verði framlengt. Í millitíðinni verði frekari gagna aflað, samstarf við starfshóp ríkisins um styttingu vinnuviku verði eflt sem og við háskólasamfélagið um áhrif styttingar vinnuvikunnar. Vísbendingar eru um að styttri vinnuvika auki framleiðni og hafi jákvæð áhrif á vellíðan starfsfólks.

Verkefnið hófst í mars 2015 á tveimur vinnustöðum, Barnavernd Reykjavíkur og Þjónustumiðstöð Árbæjar.  Niðurstöður voru jákvæðar eftir fyrsta árið svo verkefnið var þróað áfram. Haustið 2016 bættust við hverfis- og verkbækistöðvar á umhverfis- og skipulagssviði, heimaþjónusta og heimahjúkrun í efri byggð, Laugardalslaug og leikskólinn Hof.

,,Heilt yfir erum við mjög ánægð að sjá þessar niðurstöður sem styðja við þær tölur sem við sáum eftir fyrsta árið. Okkar bíður nú það verkefni að rýna betur í áhrifin en ekki var hægt að taka út gögn um veikindafjarvistir og yfirvinnu en það horfir til betra vegar. Hjá Barnavernd og á þjónustumiðstöðinni í Árbæ, sem fyrst tóku þátt í verkefninu, dró úr fjarvistum og skammtímaveikindum fyrsta árið og verður fróðlegt að sjá þróunina þar eins og í nýju starfsstöðunum sem hófu þátttöku í verkefninu síðasta haust. Meginmarkmið er að stuðla að fjölskylduvænum vinnumarkaði með styttri heildarvinnutíma",  segir Magnús Már Guðmundsson, borgarfulltrúi og formaður stýrihóps um styttingu vinnuvikunnar.