Styrkur svifryks fer hækkandi í dag

Samgöngur Umhverfi

""

Styrkur svifryks (PM10) hefur farið hækkandi það sem af er degi 28. febrúar skv. mælingum í mælistöðvum við Grensásveg, Hringbraut og Eiríksgötu. Þau sem eru viðkvæm í öndunarfærum ættu að forðast útivist í nágrenni stórra umferðagatna.

Klukkan 11:00 var hálftímagildi svifryks við Grensásveg 118 míkrógrömm á rúmmetra. Í mælistöð við Hringbraut var hálftímagildið á sama tíma 154 míkrógrömm á rúmmetra og við Eiríksgötu 74 míkrógrömm á rúmmetra. Köfnunarefnisdíoxíð hefur einnig mælst nokkuð hátt í sömu stöðvum. Nú er hægur vindur, götur þurrar og litlar líkur á úrkomu næstu daga. Búist er við svipuðum veðurfarsaðstæðum næstu daga og því líkur á svifryks- og köfnunarefnisdíoxíðmengun við umferðargötur.

Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir svifryk eru 50 míkrógrömm á rúmmetra og fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru mörkin 75 míkrógrömm á rúmmetra.

Þau sem eru viðkvæm í öndunarfærum ættu að forðast útivist í nágrenni stórra umferðagatna.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á https://reykjavik.is/thjonusta/loftgaedi-i-reykjavik. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík. Loftgæðafarstöðvar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur eru nú staðsettar við leikskólann Grænuborg við Eiríksgötu og við Hringbraut 26.