Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs mögulega yfir heilsuverndarmörk fjórða daginn í röð

Umhverfi

""

Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) er hár í borginni í dag, 27. nóvember, skv. mælingum í mælistöðinni við Grensásveg.  Styrkur efnisins fór yfir sólarhringsheilsuverndarmörkin síðustu þrjá daga. Klukkan 15:00 var klukkutímagildi köfnunarefnisdíoxíðs við Grensásveg 152,5 míkrógrömm á rúmmetra. Gert er ráð fyrir svipuðu veðri næstu daga og því líkur á að þetta ástand verði viðvarandi.    

Köfnunarefnisdíoxíðmengun kemur frá útblæstri bifreiða og er mest á morgnanna og í eftirmiðdaginn þegar umferð er þung. Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru 75 míkrógrömm á rúmmetra. 

Almenningur er hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins við þessar aðstæður, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna. Köfnunarefnisdíoxíð veldur ertingu í lungum og öndurvegi. 

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk köfnunarefnisdíoxíðs og annarra mengandi efna á www.loftgaedi.is.