Styrkur -Heiti potturinn

""

Heiti potturinn er sjóður sem styrkir opið félagsstarf í félagsmiðstöðvum og samfélagshúsum í vesturbæ, miðborg og hlíðum.

Félagsstarf í félagsmiðstöðvum/ Samfélagshúsum Velferðasviðs er vettvangur samskipta og skapandi athafna til þess að koma í veg fyrir félagslega einangrun. Einstaklingar og hópar geta sótt um styrki vegna verkefna í opnu félagsstarfi s.s. vegna námskeiða, ferðalaga, íþróttaiðkunar, fræðslu og skemmtana. Leitast skal við að veita styrki til verkefna sem eru opin öllum þátttakendum í félagstarfi og falla að hlutverki félagsmiðstöðva/samfélagshúsa eða teljast á annan hátt vera í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun í félagsstarfi.

Sjóðurinn styrkir einnig eflingu og þróun á verkefnum sem þegar eru í gangi.

Markmið:

Að auka þátttöku og virkni í opnu og sjálfbæru félagsstarfi.

Að auka hlut íþróttaiðkunar og hreyfingar í opnu og sjálfbæru félagsstarfi.

Að efla fræðslu og miðlun upplýsinga í opnu og sjálfbæru félagsstarfi.

Að rækta félagsauð og auka fjölbreyti í opnu og sjálfbæru félagsstarfi.

Reglur:

Umsækjendur séu eldri en 18 ára

Verkefnið verði framkvæmt í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum

Hámarksupphæð styrks er 200.000 krónur

Sjálfstæðir hópar, félög eða einstaklingar geta fengið styrk úr sjóðnum.

Við upphaf verkefnis skrifar styrkþegi undir samning um framkvæmd verkefnisins. Í lok verkefnis skulu styrkþegar gera grein fyrir ráðsstöfun styrksins með lokaskýrslu.

Styrkurinn er skattskyldur.

Umsókn skal senda inn á netfangið: sigridur.arndis.johannsdottir@reykjavik.is

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Arndís Jóhannsdóttir í Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða, sími – 411-1600

Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2018.