Stoðdeild fyrir börn hælisleitenda

Skóli og frístund

""

Skóla- og frístundaráð hefur samþykkt tillögu sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs um stofnun stoðdeildar vegna móttöku barna í leit að alþjóðlegri vernd og þurfa sértækan stuðning við að hefja nám í grunnskólum Reykjavíkurborgar

Starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar hafði áður skilað tillögum um bætta móttöku og nú hefur verið unnið enn frekar í því hvað hentar þessum hópi nemenda best. 

Þróað verður starf í stoðdeild fyrir börn í 3. – 10. bekk sem þurfa sértækan stuðning við að hefja nám í grunnskólum Reykjavíkurborgar. Í þessum hópi verða fyrst og fremst börn umsækjenda um alþjóðlega vernd og í einhverjum tilfellum börn sem hafa mjög rofna skólagöngu erlendis að baki.

Deildin verður starfrækt við Háaleitisskóla – Álftamýri frá og með næsta skólaári.

Nemendur sem munu sækja stoðdeild hafa dreifst á 12 skóla víðsvegar um borgina og er talin þörf á aukinni þjónustu fyrir þennan viðkvæma hóp. Vegna sérstöðu þessa nemendahóps er mikilvægt að hlúa vel að félagslegri og námslegri stöðu þeirra þar sem gera má ráð fyrir að meiri hluti barnanna muni staldra stutt við í íslensku samfélagi.

Rík áhersla er lögð á að nemendur verði tímabundið í stoðdeild á meðan unnið er að mati á námslegri stöðu þeirra og hlúð að félagslegum og sálrænum þáttum þeirra eftir bestu getu. Nemendur munu jafnframt taka þátt í starfi við frístundamiðstöðina Kringlumýri og öðru íþrótta- og frístundastarfi í hverfinu.

Búseta nemenda sem sækja munu nám í stoðdeildinni er víðsvegar í Reykjavík og verða samgöngur tryggðar fyrir þau í og úr skóla meðan þau stunda nám í stoðdeildinni. 

Háaleitisskóli í Álftamýri

Vandlega var farið yfir hvaða skólar borgarinnar hafa möguleika og áhuga á að reka stoðdeildina og var niðurstaðan sú að hún verður starfrækt við Háaleitisskóla í Álftamýri. Skólinn liggur vel við samgöngum og er mjög miðlægt í borginni, íþróttafélagið í hverfinu er með starfsstöð við skólann og húsnæði í frístundaheimili nýtist vel ásamt húsnæði skólans.

Deildin tekur til starfa næsta haust og verður tekið á móti nýjum nemendum í 3. – 10. bekk.

Fyrir liggur umsögn skólaráðs Háaleitisskóla, foreldrafélags Háaleitisskóla og kennara og taka allir vel í að deildin verði starfrækt í skólanum.

Við stoðdeildina verður eitt stöðugildi deildarstjóra, þrjú föst stöðugildi kennara og eitt stöðugildi stuðningsfulltrúa. Kostnaður skóla- og frístundasviðs fyrir árið 2019 verður rúmlega fjórtán milljónir króna.

 Skýrsla starfshóps um stoðdeild eða móttökuskóla

eldri frétt vegna málsins