Starfshópur skipaður um uppbyggingu Laugardalsvallar

Framkvæmdir Íþróttir og útivist

""

Yfirlýsing ríkis og Reykjavíkurborgar um skipan starfshóps með KSÍ um uppbyggingu Laugardalsvallar undirrituð í dag.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Guðni Bergsson formaður KSÍ,  undirrituðu í dag yfirlýsingu um skipun starfshóps um uppbyggingu Laugardalsvallar.

Knattspyrnusamband Íslands hefur haft til skoðunar um nokkurt skeið mögulega uppbyggingu Laugardalsvallar sem þjóðarleikvangs fyrir knattspyrnu. Í kjölfar góðs árangurs karla- og kvennalandsliða í knattspyrnu hefur farið fram umræða um stöðu Laugardalsvallar í alþjóðlegu samhengi en völlurinn og mannvirki umhverfis hann standast ekki alþjóðlegar kröfur. Knattspyrnusamband Íslands hefur undanfarin misseri skoðað ýmsa möguleika til úrbóta og fyrir liggur hagkvæmniathugun þar sem sviðsmyndir vegna mögulegrar uppbyggingar eru kynntar. Ríki og Reykjavíkurborg hafa stutt verkefnið með fjárframlögum, m.a. vegna kostnaðargreiningar.

Nú þegar fyrir liggur hagkvæmniathugun, rekstraráætlun og kostnaðarmat mannvirkja er komið að því að leggja mat á undirbúningsgögnin og taka ákvörðun um framhald málsins. Forsætisráðherra og borgarstjórinn í Reykjavík hafa ákveðið að skipa starfshóp í samstarfi við KSÍ sem fara skal yfir fyrirliggjandi tillögur, leggja mat á þær og gera tillögur um mögulega uppbyggingu.

Í starfshópnum eiga sæti  fulltrúar forsætisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Reykjavíkurborgar og Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ). Starfshópurinn á að meta og gera tillögur um mögulega uppbyggingu Laugardalsvallar og skila tillögum sínum fyrir 1. apríl á þessu ári.

Starfshópnum verður falið að gera tillögu um eftirfarandi atriði:

  • Hvers konar leikvangur væri hagstæðastur í Laugardal af þeim kostum sem skoðaðir hafa verið.
  • Fjármögnun og kostnaðarskiptingu út frá þeirri hugmynd sem verður fyrir valinu.
  • Eignarhald mannvirkisins.
  • Mögulega aðkomu ríkisins að verkefninu, m.a. í ljósi hugmynda um regluverk um þjóðarleikvanga.
  • Mögulega aðkomu Reykjavíkurborgar að verkefninu.
  • Mögulega aðkomu KSÍ að verkefninu.
  • Tilhögun framkvæmda og tímaáætlun.

 

Starfshópinn skipa:

Benedikt Árnason, skrifstofustjóri,  forsætisráðuneyti, formaður.

Anna Sigríður Arnardóttir, lögfræðingur, f.h. fjármála- og efnahagsráðuneytis.

Óskar Þór Ármannsson, sérfræðingur, mennta- og menningarmálaráðuneyti.

Hrólfur Jónsson, skrifstofustjóri Eigna- og atvinnuþróunar, Reykjavíkurborg.

Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri Umhverfis- og skipulagssviðs,  Reykjavíkurborg.

Ómar Einarsson, sviðsstjóri Íþrótta- og tómstundasviðs, Reykjavíkurborg.

Guðni Bergsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands.

Guðrún Inga Sívertsen, varaformaður Knattpyrnusambands Íslands.

Borghildur Sigurðardóttir, stjórnarmaður Knattspyrnusambands Íslands.

Ráðgjafi starfshópsins er Pétur Marteinssonar, framkvæmdastjóri Borgarbrags.

 

Viljayfirlýsing ríkis og Reykjavíkurborgar