Starfsfólk óskast við forsetakosningar

Stjórnsýsla

""

Reykjavíkurborg óskar eftir reynslumiklu fólki til að starfa við forsetakosningarnar 27. júní nk.

Laugardaginn 27. júní nk. verða kosningar til embættis forseta Íslands. Reykjavíkurborg leitar nú eftir starfsfólki til að taka sæti í undirkjörstjórn þann dag. Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.

Mikilvægt er að fá reynslumikið starfsfólk til starfa á kjördag. Áhugasöm eru beðin að senda póst á kosningar@reykjavik.is með eftirförnum upplýsingum:

Nafn

Kennitala

Lögheimili
Símanúmer
Netfang

Umsækjendur þurfa vera orðnir 18 ára og eiga lögheimili í Reykjavík. Tillaga um skipanir í kjörstjórnir verður síðan lögð fyrir borgarráð.