Spillivagninn með í vorverkin

Umhverfi

""

Reykjavíkurborg vill auka flokkun og skil raftækja og spilliefna. Því hefur verið hrundið af stað tilraunaverkefni um Spillivagn, sem safnar raftækjum og spilliefnum í hverfum og gerir heimilunum auðveldara að flokka.

Spillivagninn fór um hverfi borgarinnar síðastliðið haust og nú fer hann með okkur í vorverkin með nýrri áætlun. Vagninn fer um til að auðvelda íbúum að losna við smærri raftæki og spilliefni á öruggan hátt. Borgarbúar munu geta komið smærri raftækjum og spilliefnum í vagninn á ákveðnum stöðum á ákveðnum tíma.  Enn er einnig hægt að skila þessum úrgangsflokkum á Endurvinnslustöðvar SORPU bs. Spillivagninn er hrein viðbót við þá þjónustu.

Afrakstur haustsins

Íbúar fóru með 1638 kíló af spilliefnum í 177 ferðum í vagninn sl. haust. Flestir komu milli fimm og sjö og veður hafði áhrif á ferðir fólks í Spillivagninn. Vorið eru tími hreinsana og það er von átaksins að voráætlun vagnsins fari vel framúr haustinu. Markmið átaksins er að auka magn raftækjaúrgangs og spilliefna sem er meðhöndlaður með réttum hætti. Átakið er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, SORPU bs. og Efnamóttökunnar og voráætlun er seinni hluti átaksins.

Við hverju tekur Spillivagninn?

Rafhlöður og rafgeyma / ljósaperur og hitamæla / Málningu, grunna, bón, viðarvörn, lím og lakk, hreinsiefni og lífræn leysiefni / stíflueyði / eitur; skordýra-, rottu- og illgresis/ olíu og feiti /raftæki, eins og brauðristar, vöfflujárn, hárblásara, síma, rakvélar, snúrur, spjaldtölvur, sléttujárn og ýmislegt fleira. Stór raftæki og magn umfram 20 lítra eða 15kg. er farið með á endurvinnslustöðvar.

Voráætlun Spillivagnsins

· Árbær – þriðjudaginn 7. maí kl. 15–20 við Árbæjarlaug.

· Breiðholt – þriðjudaginn 23. apríl kl. 15–20 við Breiðholtslaug. 

· Bústaðir/Háleiti – þriðjudaginn 16. apríl kl. 15–20 við Austurver. 

· Grafarholt/Úlfarsárdalur – þriðjudaginn 30. apríl. kl 15-20 við grenndarstöð við Þjóðhildarstíg. 

· Grafarvogur – fimmtudaginn 9. maí kl. 15–20 við Spöngina.

· Hlíðar– fimmtudaginn 11. apríl kl. 15–20 við Kjarvalsstaði. 

· Kjalarnes –fimmtudaginn 2. maí kl. 15–20 við grenndarstöð Vallargrund 

· Laugardalur – þriðjudaginn 9. apríl kl. 15–20 við Laugardalslaug 

· Miðborg – miðvikudaginn 17. apríl kl. 15–20 við Sundhöllina

· Vesturbær – miðvikudaginn 24. apríl kl. 15–20 við Vesturbæjarlaug 

 Sjáumst í Spillivagninum!

Lögum samkvæmt er bannað að henda spilliefnum í gráu tunnuna undir blandaðan úrgang. Engu að síður má ætla að um 150 tonn af raftækjum og spilliefnum hafi farið þá leið og verið urðuð í Álfsnesi í fyrra. Raftæki sem hafa þjónað sínum tilgangi innihalda oft spilliefni, en einnig ýmis verðmæt og jafnvel sjaldgæf hráefni og jafnvel nýtanlega hluti sem æskilegt er að endurvinna og nýta í framleiðslu nýrra raftækja eða annarra hluta.

Veggspjald með áætlun vorsins