Snorrabraut lokuð umferð á fimmtudag og föstudag

Samgöngur Umhverfi

""

Vegna framkvæmda þarf að loka tímabundið fyrir umferð um Snorrabraut milli Flókagötu og Bergþórugötu fimmtudag og föstudag, 1. og 2. ágúst.

Unnið er við hitaveitu, rafmagn og ljósleiðara, auk götulýsingar. Grafið verður í gangstétt og að hluta í akbraut.  Berg Verktakar annast framkvæmd fyrir Veitur. 

Strætó og almennri umferð er vísað um hjáleiðir meðan lokun varir. Umferð  suður Snorrabraut er beint á hjáleiðir um Bergþórugötu, Barónstíg og Egilsgötu. Umferð norður Snorrabraut mun hins vegar fara hjáleið um Flókagötu, Rauðarárstíg og Grettisgötu.

Afnotaleyfi og merkingaráætlun á upplýsingasíðu lokunar