Jólavættaleikur Reykjavíkurborgar er hafinn og venju samkvæmt er 13 jólavættir að finna víðs vegar um borgina.
Ratleikurinn hefur nú verið snjallvæddur og auðvelt er að nálgast hann á síðunni Safnaðu.is þar sem jafnframt má finna á einum stað allt það sem söfn borgarinnar hafa að bjóða á aðventunni.
Jólavættaleiknum er ætlað að hvetja borgarbúa og aðra gesti til að njóta miðborgarinnar á aðventunni. Jafnframt því er verið að upphefja íslenska sagnahefð og tengja íbúa borgarinnar við gesti hennar í gegnum samtöl og sögur. Gunnar Karlsson myndlistarmaður teiknaði vættirnar sem hafa lífgað upp á miðborgina á aðventunni frá árinu 2011.
Leppalúði, Leiðindaskjóða, Stekkjastaur, Jólakötturinn og fleiri furðuverur verða búnar að koma sér fyrir á húsveggjum víða í miðbænum í desember og úr verður skemmtilegur ratleikur fyrir alla fjölskylduna. Þátttakan felst í því að leita uppi vættirnar og svara laufléttum spurningum.
Dregið verður úr svarseðlum 19. desember og vegleg verðlaun í boði fyrir þrjá heppna þátttakendur sem eru með öll svör rétt.
Farðu inn á Safnaðu.is og taktu þátt í skemmtilegum jólaratleik.
Góða skemmtun!