Sleipnir á vit nýrra ævintýra

Skóli og frístund Menning og listir

""

Reykjavík bókmenntaborg UNESCO í samvinnu við Félag fagfólks á skólabókasöfnum hefur útbúið Sleipnispakka fyrir skólabókasöfn til að nýta í kennslu og hvetja grunnskólabörn til lesturs.

Sleipnir lestrarfélagi barnanna er tákn fyrir lestrarhvatningu Bókmenntaborgarinnar og með honum eru send út skilaboð um lestrargleði og börn hvött til að koma með á hugarflug inn í heim ævintýranna.

Sleipnir og stórhættulega fjölskyldutréð.

Ævar Þór Benediktsson hefur skrifað nýja bók um ævintýri Sleipnis, sem heitir Sleipnir og stórhættulega fjölskyldutréð. Bókina er aðeins hægt að nálgast á skólabókasöfnum því hún er skrifaði sérstaklega fyrir söfnin í borginni að beiðni Bókmenntaborgarinnar.

Sleipnir lestrarfélagi barnanna er tákn fyrir lestrarhvatningu Bókmenntaborgarinnar og í gegnum það verkefni gefur Bókmenntaborgin öllum skólasöfnum í borginni nýju bókina eftir Ævar Þór ásamt fyrstu bókinni um Sleipni, Vetrarævintýri Sleipnis eftir Gerði Kristnýju.

Með Sleipni fylgja verkefni fyrir 1. bekk á vef Bókmenntaborgarinnar og geta starfsmenn á skólasöfnum prentað út verkefni fyrir sína nemendur eftir þörfum. Síðan fá bókasöfnin bókamerki sem ætluð eru sem lestrarhvatning fyrir nemendur í 2. bekk og uppúr.

Bókamerkið er hvatning til að lesa og telja þann fjölda bóka sem lesinn er. Eftir hverja lesna bók er merkt við á bókamerkið og eftir sex bækur getur nemandinn valið sér mynd af einni af persónum úr bókinni hans Ævars. Teikningar  af Sleipni í báðum bókunum eru eftir Gunnar Karlsson en hann myndlýsir ævintýrunum á sinn einstaka hátt.

Stiklur með Sleipni og Ævar Þór

Á vef Bókmenntaborgarinnar er síðan tvær myndstiklur til að styðja við ævintýri Sleipnis í grunnskólanum. Sleipnir á skólabókasafninu er stikla til að sýna nýjum meðlimum á bókasafinu, en þar fer Sleipnir á lifandi hátt yfir hvað er hægt að gera á söfnunum.  Hann hvetur börnin til að nýta og njóta þess að vera á safninu og skilaboð hans til barnanna eru, „komdu með á hugarflug“ sem er bein tilvísum í flug Sleipnis á milli heima. Seinni stiklan er lestrahvatning frá Ævari Þór, sem skrifar nýjasta ævintýri  Sleipnis. Ævar segir aðeins frá bókinni og þeirri sérstöðu hennar að bókina er aðeins hægt að fá að láni í skólasafninu. Efnið er unnið í samstarfi við Fagfólk á skólabókasöfnum

Efnið er gjöf til skólabókasafna í Reykjavík og er nú dreift í fyrsta sinn. Fyrir skólabókasöfn á landsbyggðinni verður hægt að kaupa pakkann hjá Bókmenntaborginni því fátt er betra en að fara á gott hugarflug.

Sleipnir – lestrarfélagi barnanna er þróunarverkefni sem Bókmenntaborgin hefur unnið undanfarin ár og kemur hann nú í fyrsta sinn inn í grunnskólann en áður hafa leikskólabörn í Reykjavík fengið að kynnast lestrarfélaganum Sleipni í lestrarstundum á Borgarbókasafninu. Vetrarævintýri Sleipnis og verkefni því tengt hafa fylgt leikskólabörnum heim á sinn leikskóla og eru öll verkefnin byggð á læsisstefnu Reykjavíkurborgar fyrir leikskóla.