Skráning í sumarstarf og sumarnámskeið stendur yfir

Sumarstarf

Í sumar verður fjölbreytt framboð af afþreyingu og fræðslu fyrir börn og unglinga í Reykjavík. Skráning hefst í næstu viku. Boðið eru upp á sumarfrístund, sumarsmiðjur, dýranámskeið í Húsdýragarðinum, siglinganámskeið í Siglunesi.

Sumarstarf og námskeið fyrir börn og unglinga

Í sumar verður fjölbreytt framboð af afþreyingu og fræðslu fyrir börn og unglinga í Reykjavík. Finna má upplýsingar um sumarstarfið á frístundavefnum www.fristund.is, s.s. um starf frístundamiðstöðva, siglinganámskeið, sumarbúðir, íþróttanámskeið, reiðnámskeið og margt fleira sem í boði er.

Skráning

Skráning í sumarstarf frístundaheimila (sumarfrístund) og sértækt félagsmiðstöðvastarf hefst þriðjudaginn 26. apríl kl. 10:00 en skráning í sumarsmiðjur fyrir börn sem eru að ljúka 5.-7. bekk hefst miðvikudaginn 4. maí kl. 10:00.

Skráning á siglinganámskeið í Siglunesi hefst þriðjudaginn 26. apríl kl 12:00 og á dýranámskeið í Húsdýragarðinum hefst skráning þriðjudaginn 26. apríl kl 14:00.

Skráning í sumarstarf á vegum Reykjavíkurborgar fer fram á vefnum http://sumar.fristund.is. Athugið að innskráning er á island.is þar sem hægt er að nota Íslykil eða Rafræn skilríki í síma.

Skráning í sumarstarf frístundaheimilanna, sértækt félagsmiðstöðvastarf og siglinganámskeið þarf að fara fram fyrir kl. 12:00 á föstudögum eigi barn að byrja næsta mánudag á eftir. Skráning á dýranámskeið þarf að fara fram á miðvikudegi í vikunni áður en námskeið hefst. Foreldrum er bent á að skrá börn sín tímanlega þar sem námskeiðin geta verið fljót að fyllast.

Ef foreldrar eru af erlendum uppruna og eiga lögheimili í Reykjavík (annað foreldri eða báðir) og barnið hefur búið á Íslandi skemur en tvö ár, eru þrjár vikur án endurgjalds í sumarfrístund/sértækum félagsmiðstöðvum/sumarsmiðjum gegn umsókn þar um. Sótt er um skriflega til viðkomandi frístundamiðstöðar. Þessi afsláttur gildir ekki fyrir börn sem eru með lögheimili erlendis og koma tímabundið hingað til lands yfir sumarmánuðina.

Athugið að ef foreldrar geta ekki nýtt sér rafræna innritun geta þeir fengið aðstoð við skráningu í frístundamiðstöðvum borgarinnar (helst fyrir hádegi). Ekki er hægt að skrá börn í sumarstarf Reykjavíkurborgar í gegnum síma en hægt er að fá leiðbeiningar símleiðis hjá þjónustuveri Reykjavíkurborgar í síma 411-1111 ef foreldrar eru við nettengda tölvu.

Skráning í sumarstarf hjá öðrum en Reykjavíkurborg fer fram hjá viðkomandi félagi/aðila.                

Vinnuskólinn

Vinnuskóli Reykjavíkur býður nemendum úr 8., 9. og 10. bekkjum grunnskóla upp á sumarstörf. Skráning í skólann er hafin og öllum unglingum sem skráðir verða mun bjóðast starf. Foreldrar skrá sína unglinga á síðunni reykjavik.is/vinnuskolinn og þar má jafnframt finna nánari upplýsingar um starfið. Skráningarfrestur er til mánudagsins 16. maí.

Með von um ánægjulegt samstarf

  • Skóla- og frístundasvið
  • Íþrótta- og tómstundasvið
  • Umhverfis- og skipulagssvið