Skráning í sumarstarf fyrir börn og unglinga að hefjast

Skóli og frístund

""

Í sumar verður fjölbreytt framboð af afþreyingu og fræðslu fyrir börn og unglinga í Reykjavík. 

Finna má upplýsingar um sumarstarfið á frístundavefnum www.fristund.is, s.s. um starf frístundamiðstöðva, siglinganámskeið, sumarbúðir, íþróttanámskeið, reiðnámskeið og margt fleira sem í boði er.

Skráning
Skráning í sumarstarf frístundaheimila (sumarfrístund), sértækt félagsmiðstöðvastarf, siglinganámskeið í Siglunesi og á dýranámskeið í Húsdýragarðinum hefst þriðjudaginn 25. apríl kl. 10:00 en skráning í sumarsmiðjur fyrir börn sem eru að ljúka 5.-7. bekk hefst  16. maí kl. 10:00.

Skráning í sumarstarf á vegum Reykjavíkurborgar fer fram í gegnum frístundavefinn. Athugið að innskráning er með Íslandslykli í gegnum island.is og þar þurfið þið rafræn skilríki.

Skráning í sumarstarf frístundaheimilanna, sértækt félagsmiðstöðvastarf og siglinganámskeið þarf að fara fram fyrir kl. 12:00 á föstudögum eigi barn að byrja á mánudeginum á eftir. Skráning á dýranámskeið þarf að fara fram á miðvikudegi í vikunni áður en námskeið hefst. Foreldrum er bent á að skrá börn sín tímanlega þar sem námskeiðin geta fyllst fljótt.

Athugið að ef foreldrar geta ekki nýtt sér rafræna innritun geta þeir fengið aðstoð við skráningu í frístundamiðstöðvum borgarinnar (helst fyrir hádegi). Ekki er hægt að skrá börn í sumarstarf Reykjavíkurborgar í gegnum síma en hægt er að fá leiðbeiningar símleiðis hjá þjónustuveri Reykjavíkurborgar í síma 411-1111 ef foreldrar eru við nettengda tölvu.

Skráning í sumarstarf hjá öðrum en Reykjavíkurborg  fer fram hjá viðkomandi félagi/aðila.

Information on summar activities for children and youth

Informacje o zajęciach letnich dla dzieci i młodzieży