Skólastarf að hefjast

Skóli og frístund

""

Grunnskólar borgarinnar verða settir fimmtudaginn 22. ágúst.

Í vikunni setjast um 1.550 börn í fyrsta bekk og hefja grunnskólagönguna.

Alls verða um 15.300 börn við leik og störf í grunnskólum borgarinnar í vetur. Af þeim verða um 14.500 í borgarreknum skólum og um 750 í sjálfstætt starfandi skólum 

Nánari tímasetningar um mætingu einstakra bekkjadeilda er að finna á heimasíðum grunnskólanna. 

Rétt er að minna ökumenn á að þegar skólarnir taka til starfa fjölgar ungum vegfarendum í umferðinni, sérstaklega nærri skólum og skólaleiðum, og eru þeir beðnir að sýna fyllstu aðgát og tillit.