Skólahald með eðlilegum hætti

Samgöngur Skóli og frístund

""

Skólahald í Reykjavík verður með eðlilegum hætti í dag, miðvikudaginn 11. desember,  þar sem ekki er lengur í gildi viðvörun vegna veðurs.

Óveðrið sem geisaði á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt hefur nú gengið niður. Samgöngur í borginni eru greiðar og skólar í Reykjavík opnir og starfandi með eðlilegum hætti. Við viljum þakka almenningi fyrir góð og skynsamleg viðbrögð í gær við fyrirmælum almannavarna.