Skóflustunga að nýrri slökkvistöð við Skarhólabraut

Velferð Framkvæmdir

""

Jón Gnarr borgarstjóri og fulltrúar sveitafélaganna á höfuðborgarsvæðinu tóku fyrstu skóflustunguna að nýrri slökkvistöð við Skarhólabraut 1 í Mosfellsbæ í dag. Borgarstjóri hélt ræðu þar sem hann sagði að ný slökkvistöð myndi bæta aðstöðu slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og auka öryggi íbúa. Að því búnu var tekin skóflustunga sem fulltrúar sveitafélaganna gerðu í sameiningu.

Byggðaþróun undanfarin ár hefur stækkað þjónustusvæði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) töluvert og gert það að verkum að útkallstíminn hefur ekki verið nægilega góður á tilteknum svæðum. Með byggingu nýrrar stöðvar í Mosfellsbæ styttist viðbragðstími slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna sem gerir sveitarfélögunum kleift að veita betri grunnþjónustu. Sveitarfélögin standa sameiginlega að rekstri slökkviliðs og sjúkraflutninga til að tryggja sem best öryggi og hagsmuni íbúanna. Stöðin við Skarhólabraut verður í kringum 2000 m2 að stærð með tvær hæðir og kjallara.

Á teikningum er bæði gert ráð fyrir slökkvi- og sjúkrabílum en byrjað verður á því að byggja þann hluta sem ætlaður er fyrir slökkvibílana á meðan ekki hefur verið skrifað undir samning við ríkið um sjúkraflutninga. Sjúkraflutningar eru ekki lögbundið verkefni slökkviliða en Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu (SHS) hefur séð um sjúkraflutninga með samningi við ríkið frá árinu 2000. Sá samningur rann út árið 2011 og því setur stjórn SHS fyrirvara í samning við verktaka um byggingu sjúkrabílaaðstöðunnar þar til skrifað hefur verið undir nýjan samning. Bygging slökkvistöðvarinnar er sameiginlegt verkefni þeirra sveitarfélaga sem standa að SHS og hefur verið í undirbúningi í nokkur ár.

Sveitarfélögin eru Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarbær, Garðabær, Mosfellsbær og Seltjarnarnesbær. Stjórn SHS er skipuð framkvæmdastjórum þessara sveitarfélaga og borgarstjórinn í Reykjavík er formaður stjórnar.