Skapandi verkefni í húsnæði borgarinnar

Covid-19 Menning og listir

""

Reykjavíkurborg býður húsnæði til leigu í Gufunesi, Bryggjuhverfi og Skerjafirði fyrir áhugaverð skapandi verkefni.  Til ráðstöfunar eru rúmlega 9 þús. fermetrar sem ætlunin er að nýta sem hluta af viðspyrnu vegna erfiðs efnahagsástands í kjölfar covid-19 faraldursins og eru ekki í notkun í dag eða eru að losna.

Hugmyndafræði verkefnisins er að auglýsa eftir tímabundnum leigjendum á meðan viðkomandi svæði eru í skipulags- og uppbyggingarferli sem þó er hugsað til nokkurra ára.  Húsin sem um ræðir eru fjölbreytt, í misjöfnu ástandi og verða afhent eins og þau eru.  Við val á starfsemi í húsin verður sérstök áhersla lögð á skapandi greinar, að byggja upp og efla nýjar atvinnugreinar og samfélagsleg verkefni. Leitast verður eftir því að starfsemin falli vel að nærumhverfinu og gæði það lífi.  Kvikmyndagerð og starfsemi henni tengd hefur byggst upp í Gufunesi á síðustu árum og önnur listsköpun hefur einnig fest þar rætur.   Vinnuhópur Reykjavíkurborgar metur umsóknir og velur samstarfsaðila.  Allar nánari upplýsingar er að finna á reykjavik.is/skapandi.