Skapandi börn verðlaunuð

Menning og listir Skóli og frístund

""

Verðlaunahátíðin SÖGUR fór fram í fyrsta sinn sunnudagskvöldið 22. apríl. Hátíðin var haldin í Eldborgarsal Hörpu og var öll hin glæsilegasta.

Um 2.000 börn á aldrinum 6-12 ára kusu það besta á sviði tónlistar, bókmennta, sjónvarps og leikhúss, auk þess sem skapandi börn voru verðlaunuð.

Amma best eftir Gunnar Helgason hlaut Bókaverðlaun barnanna sem besta frumsamda bókin og Dagbók Kidda klaufa – furðulegt ferðalag eftir Jeff Kinney í þýðingu Helga Jónssonar var kosin besta þýdda bókin. Sögusteininn, heiðursverðlaun IBBY á Íslandi, hlaut Guðrún Helgadóttir fyrir æviframlag sitt í þágu barnamenningar á Íslandi.

Í flokki tónlistar var B.O.B.A. með JóaPé og Króla valið lag ársins en Daði Freyr og Gagnamagnið sigruðu í flokknum Tónlistarflytjandi árins og áttu einnig lag ársins, Hvað með það? Blái hnötturinn var valinn besta leiksýningin og börnin í Bláa hnettinum voru kosin bestu leikarar og leikkonur ársins. Skólahreysti var kosin barnasjónvarpsþáttur ársins, Fjörskyldan hlaut verðlaun sem fjölskydusjónvarpsþáttur ársins og loks var sjónvarpþáttaröðin Loforð valið besta leikna efnið í sjónvarpi eða kvikmyndum.

Þá voru sigurvegarar í sögusamkeppni KrakkaRÚV einnig verðlaunaðir. Árni Hrafn Hallsson og Eyvör Stella Þeba Guðmundsdóttir hlutu verðlaun fyrir smásögur ársins, Sunna Stella Stefánsdóttir og Iðunn Ólöf Berndsen fyrir leikrit ársins og Silvía Lind Tórshamar fyrir útvarpsleikrit ársins. Svandís Huld Bjarnadóttir, Ísak Helgi Jensson, Sara Einarsdóttir og Sóldís Perla Marteinsdóttir hlutu verðlaun fyrir stuttmyndir sínar. Leikritin sem báru sigur úr býtum verða sett upp í Borgarleikhúsinu og Útvarpsleikhúsinu á næsta leikári. Úrval af smásögum barnanna kemur út á rafbók hjá Menntamálastofnun í dag, og er aðgengileg á mms.is/sogur, lesendum að kostnaðarlausu.

Að hátíðinni stóðu SÖGUR – samtök um barnamenningu, í samstarfi við KrakkaRÚV, SÍUNG, IBBY á Íslandi, Barnamenningarhátíð Reykjavíkurborgar, Reykjavík bókmenntaborg UNESCO, Borgarbókasafnið, Borgarleikhúsið, Menntamálastofnun, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur, Hörpu og Miðstöð skólaþróunar við HA. Hátíðin var send út í beinni útsendingu á RÚV og hægt er að horfa á hana í Sarpinum á www.ruv.is. SÖGUR er hluti af afmælisdagskrá 100 ára fullveldisafmæli Íslands.