Segulminni um útivistarreglur barna og unglinga

Skóli og frístund Velferð

""

Frá 1. september til 1. maí ár hvert eiga öll börn 12 ára og yngri að vera komin heim fyrir klukkan átta á kvöldin en þau sem eru 13-16 ára ekki seinna en tíu. Reglurnar miðast við fæðingarár barnanna.

Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, og lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Sigríður Björk Guðjónsdóttir, hafa undirritað árlegt bréf sem fjölskyldur barna í 1. og 5. bekk grunnskóla Reykjavíkur fá heimsent ásamt segli, sem minnir á útvistarreglur barna.

Markmiðið með útivistarreglunum er að stuðla að heilbrigðu umhverfi fyrir börn og unglinga. Reglurnar eru fyrst og fremst settar til verndar börnum og stuðla að því að þau séu ekki ein og eftirlitslaus úti eftir að rökkva tekur.

Allir foreldrar vilja börnunum sínum það besta. Útivistarreglurnar hjálpa foreldrum að setja börnum sínum mörk og styðja þannig við bakið á foreldrum í uppeldishlutverkinu. Því er full ástæða til að vekja áfram athygli á gildandi reglum og hvetja foreldra til að standa saman að því að reglurnar séu virtar.

Seglarnir munu berast forsjáraðilum í pósti öðru hvoru megin við helgi en kjörið er að setja þá á ísskápinn þar sem hann minnir fjölskylduna á útivistarreglurnar.

Reglurnar gilda allan ársins hring og alla daga, bæði virka daga, um helgar og hátíðisdaga. Stöndum saman að forvörnum og fræðslu fyrir börn og unglinga.