Sambandið hvatti til bréfasendinga fyrir kosningar

Stjórnsýsla

""

Samband íslenskra sveitarfélaga hvatti sveitarfélög til að beita sér fyrir aukinni kosningaþátttöku.

Í ljósi ákvörðunar Persónuverndar og opinberrar umræðu um hlutverk sveitarfélaga í að hvetja til kosningaþátttöku telur Reykjavíkurborg rétt að halda eftirtöldu til haga. Í stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga 2018-2022 segir að Sambandið skuli beita sér fyrir „umræðu á vettvangi sveitarfélaga um framþróun lýðræðis á sveitarstjórnarstigi, hvernig hægt er að auka þátttöku í kosningum.“

Á undanförnum árum hefur það talist alvanalegt að sveitarfélög hvetji til þátttöku í kosningum. Árið 2014 var fyrsta árið sem Samband íslenskra sveitarfélaga fór í átak fyrir sveitarstjórnarkosningar. Þá voru útbúin tvö myndbönd og voru sveitarfélögin hvött til að dreifa þeim á samfélagsmiðlum og vefjum sínum. Sama ár beitti Sambandið sér fyrir því að unnin yrði rannsókn á kjörsókn við sveitarstjórnarkosningar. Þessi rannsókn var gerð af félagsvísindastofnun og kostuð af sambandinu og innanríkisráðuneytinu. Rannsóknin leiddi í ljós að ungt fólk væri síður að skila sér á kjörstað. Frá þeim tíma hefur sambandið styrkt skuggakosningar bæði til alþingis- og sveitarstjórnarkosninga.

Fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á síðasta ári ákvað Sambandið að senda hvatningarbréf til sveitarfélaga. Þann 17. maí sl. sendi Sambandið tilbúin, stöðluð bréf til allra sveitarfélaga á landinu og hvatti þau til að senda til ungs fólks og fólks af erlendum uppruna. Í bréfunum eru viðkomandi hópar minntir á að nýta kosningarétt sinn. Bréfin voru á íslensku, ensku og pólsku og er það íslenska hér eftirfarandi:      

„Kæri kjósandi.

Velkomin(n) á kjörskrá hjá (sveitarfélaginu).

Í tilefni af því að þetta er í fyrsta sinn sem þú tekur þátt í kosningum hér í (sveitarfélaginu), langar okkur að benda þér á nokkur gagnleg atriði vegna sveitarstjórnarkosninga þann 26. maí nk.

Hvar get ég kosið?

Kjörstaður(ir) sveitarfélagsins eru:
(Kjörstaður 1, heimilisfang)       (kjörstaður 2, heimilisfang)

(Kjörstaður 3, heimilsfang)         (kjörstaður 4, heimilisfang) (o.s.frv.)

Kjörstaður(ir) eru opnir kl. xx:xx – xx:xx. Flettu þér upp í kjörskrá á upplýsingavefnum egkys.is og sjáðu hvar þú átt að kjósa. Ef þú kemst ekki til að kjósa á kjördag, geturðu greitt atkvæði utan kjörfundar. Nánari upplýsingar um það eru einnig á egkys.is.

Hvernig fara kosningarnar fram?

Þegar þú hefur gert grein fyrir þér með því að framvísa persónuskilríkjum (vegabréfi) færðu kjörseðil afhentan. Þú ferð inn í kjörklefann með kjörseðilinn og notar blýant sem þar er til að setja X við það framboð sem fær atkvæði þitt. (Þú ferð inn í kjörklefann með kjörseðilinn og notar blýant sem þar er til að skrifa nöfn þeirra sem þú vilt í sveitarstjórn). Brjóttu því næst kjörseðilinn saman og settu í kjörkassa.  Ekki gera neitt annað við kjörseðilinn vegna þess að með því gætir þú ógilt atkvæði þitt.

Er ég örugglega á kjörskrá?

Hefur nýlega flutt og fengið nýtt heimilisfang eða ertu erlendur ríkisborgari? Farðu á egkys.is og flettu þér upp til að sjá hvort þú ert örugglega á kjörskrá. Erlendir ríkisborgarar ávinna sér kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum eftir búsetu hér á landi í tiltekinn árafjölda.

Nánari upplýsingar

Á upplýsingavefnum egkys.is er mikið af gagnlegum upplýsingum fyrir kjósendur á einum stað. Á vef sveitarfélagsins (xxxx.is) eru  upplýsingar um kjörstaði og þau framboð sem eru til sveitarstjórnar (bæjarstjórnar). Upplýsingar um frambjóðendur og áherslur þeirra í stjórnmálum sveitarfélagsins má svo nálgast á vef- og samfélagsmiðlum framboða.

Með kveðju,

(Lógó svf.“

Sambandið útbjó einnig smáskilaboð sem sveitarfélög gátu nýtt sér á samfélagsmiðlum. Þau voru eftirfarandi:

„Hvatning fyrir samfélagsmiðla vegna sveitarstjórnarkosninga

Hafðu áhrif nærsamfélagið þitt og taktu þátt í sveitarstjórnarkosningunum 26. maí nk.

Að hafa rétt til þess að kjósa er ekki sjálfsagt - virðum kosningaréttinn.

Mundu að kjósa í sveitarstjórnarkosningunum 26. maí nk.

Enska

Have an effect on your local community by voting in the municipal elections on 26 May.

We are fortunate to be able to vote - let’s use our voting rights.

Remember to vote in the municipal elections on 26 May.”

Reykjavíkurborg nýtti sér ekki þessi bréf Sambandsins né smáskilaboðin. Í staðinn útbjuggu fræðimenn frá Háskóla Íslands fjögur mismunandi bréf fyrir Reykjavíkurborg sem send voru til ungra kjósenda í rannsóknarskyni. Þau skilaboð höfðu þó öll sama tilganginn sem var að hvetja fólk til að nýta kosningarétt sinn og mæta á kjörstað. Þá voru tvö bréf útbúin til erlendra ríkisborgara og kvenna 80 ára og eldri þar sem þeir hópar voru hvattir til að kjósa.

Reykjavíkurborg hafði einnig til hliðsjónar kynningarefni sem Samband danskra sveitarfélaga og Kaupmannahafnarborg notaði í sveitarstjórnarkosningum í Danmörku 2013 og 2017. Sveitarfélög á Norðurlöndunum hafa um árabil beitt sér í því að auka kosningaþátttöku meðal tiltekinna hópa, sem rannsóknir sýna að skila sér síður á kjörstað. Þar eins og hér var sjónum sérstaklega beint að ungum kjósendum og innflytjendum.