Reykvískir nemendur bæta sig í öllum þáttum PISA 2018

Skóli og frístund

""

Reykvískir nemendur bæta sig í öllum þáttum PISA milli prófa og hafa sterka stöðu á landsvísu.

Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar er ánægður með það öfluga fagstarf sem á sér stað í grunnskólum borgarinnar. Hann segir þó mikilvægt að skólarnir í borginni haldi vöku sinni og geri enn betur til að ná fram betri árangri í lesskilningi. Það eigi  sérstaklega við um nemendur af erlendum uppruna. Hann segir að á liðnum misserum hafi mikil áhersla verið lögð á aukinn stuðning við skóla varðandi málþroska og læsi en gera megi enn betur til að efla náttúru- og  stærðfræðilæsi. 

Í Reykjavík er verið að innleiða nýja menntastefnu sem leggur m.a. ríka áherslu á læsi. Með læsi er átt við þá hæfni að geta lesið, skilið, túlkað og unnið á gagnrýninn hátt með ritað mál, orð, tölur, myndir og tákn.  Mikill hugur er í skólastjórnendum og kennurum að framfylgja stefnunni með auknum gæðum og markvissu fagstarfi. Skóla- og frístundasvið einsetur sér að efla enn frekar stuðning við kennara og veita þeim ríkari tækifæri til starfsþróunar og símenntunar.

Nánari gagnagreining

Í niðurstöðum í lesskilningi í PISA- 2018  er munur á frammistöðu á höfuðborgarsvæðinu (2.036 nemendur, 485 stig) og frammistöðu í öðrum landshlutum (1.260 nemendur, 455 stig) 30 PISA-stig.

Frammistaða barna í Reykjavík er betri en 2015. Meðalstig nemenda í Reykjavík (489 stig) er svipað og meðaltal OECD-landa sem tóku þátt 2018 (487 stig).  

Samkvæmt niðurstöðum PISA hafa íslenskir nemendur bætt sig marktækt í læsi á stærðfræði frá árinu 2015 og er Ísland nú rétt yfir meðaltali OECD í þeirri grein. Talsverður munur er á frammistöðu nemenda á þessu sviði eftir landshlutum og standa nemendur í Reykjavík og nágrenni sterkast að vígi. Munur á frammistöðu á höfuðborgarsvæðinu (2.036 nemendur, 506 stig) og frammistöðu í öðrum landshlutum (1.260 nemendur, 477 stig) er 29 stig, og er það svipaður munur og er á frammistöðu í lesskilningi. Þá er meðalstig reykvískra nemenda (509 stig) hærra en meðalstig þeirra OECD landa sem tóku þátt 2018 (489 stig) sem og þeirra OECD landa tóku þátt 2012 (494 stig).

Læsi nemenda á Íslandi á náttúruvísindi er samkvæmt PISA nánast óbreytt frá árinu 2012, en þar líkt og í lesskilningi og læsi á stærðfræði standa nemendur í Reykjavík og nágrenni sterkast að vígi.  Munur á frammistöðu á höfuðborgarsvæðinu (2.036 nemendur, 486 stig) og frammistöðu í öðrum landshlutum (1.260 nemendur, 457 stig) er 29 stig, sem er álíka munur og er á frammistöðu í öðrum matssviðum PISA.

Ef frammistaðan nú er borin saman við PISA 2015, þegar læsi á náttúruvísindi var síðast aðalsvið PISA, er frammistaða reykvískra nemenda marktækt betri og ef litið er lengra aftur má sjá óbreytta  frammistöðu frá 2006.  Meðalstig nemenda í Reykjavík (488 stig) er nánast það sama og meðaltal OECD landanna sem tóku þátt 2018 (489 stig).

Sjá niðurstöður PISA-könnunar 2018 á vef Menntamálastofnunar.