Reykjavíkurborg og ríki semja um móttöku 1500 flóttamanna

Velferð

Dagur B. Eggertsson, Guðmundur Ingi Guðbrandsson og Nichole Leigh Mosty skrifa undir þjónustusamning ríkis og borgar.
Dagur B. Eggertsson, Guðmundur Ingi Guðbrandsson og Nichole Leigh Mosty skrifa undir þjónustusamning ríkis og borgar.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningarseturs, undirrituðu í dag samning um samræmda móttöku flóttafólks í Reykjavík. Samningurinn var undirritaður í Ráðhúsi Reykjavíkur og kveður á um að Reykjavíkurborg taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 1.500 flóttamönnum á tímabilinu 1. október 2022 til 31. desember 2023.

Markmiðið með samræmdri móttöku flóttafólks er að tryggja flóttafólki samfellda og jafna þjónustu óháð því hvaðan það kemur sem og óháð því í hvaða sveitarfélagi það býr. Lögð er áhersla á nauðsynlega aðstoð við fólk til að vinna úr áföllum og að það fái tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu, svo sem með atvinnu, námi, þ.m.t. íslenskunámi, og samfélagsfræðslu. 

Mikil þekking hjá Reykjavíkurborg

Samræmda móttakan nær til fólks sem fengið hefur alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hér á landi. Fjölmenningarsetur er tengiliður milli ríkis og borgar og tengir flóttafólk við Reykjavíkurborg, auk þess að veita starfsmönnum borgarinnar faglegar leiðbeiningar og ráðgjöf. Hjá Reykjavíkurborg er mikil þekking á móttöku flóttafólks enda hefur borgin lengi tekið þátt í móttöku flóttafólks og verið brautryðjandi á því sviði. Eldri samningur Reykjavíkurborgar við stjórnvöld um samræmda móttöku flóttafólks hljóðaði upp á móttöku 500 flóttamanna en því til viðbótar hefur Reykjavíkurborg veitt fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd þjónustu á meðan umsókn þeirra hefur verið til meðferðar hjá stjórnvöldum.

Stórt skref hefur nú verið stigið í móttöku flóttafólks hér á landi. Samstarfið við Reykjavíkurborg hefur verið einstaklega gott og vert er að óska borginni til hamingju – og sömuleiðis óska borgarbúum til hamingju með þá góðu viðbót sem mannlífið í borginni nú fær.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra

Innrás Rússa í Úkraínu er hörmuleg og hefur sent milljónir fólks á vergang og flótta. Borgarstjórn hefur verið samstíga í því að fordæma innrásina og sameinast um að borgin taki virka þátt i móttöku flóttafólks. Það er mjög jákvætt að samningar um móttökuna séu nú í höfn og að við stöndum saman um að bjóða flóttafólk og flóttabörn velkomin og vinnum að því að þau verði hratt og vel hluti af samfélaginu okkar hér í Reykjavík. Þessir samningar eru gott skref að því marki.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri