Reykjavík tekur forystu með Græna planinu

Umhverfi Stjórnsýsla

Séð yfir trjágróður og húsþök í Reykjavík

Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, mælir í dag fyrir tillögu í borgarstjórn um Græna planið, víðtæka áætlun um fjárfestingar, framkvæmdir og atvinnusköpun í Reykjavík.

Gæna planið gerir ráð fyrir að borgin taki forystu í aðgerðum til að bregðast við efnshagssamdrætti og vaxandi atvinnuleysi eftir heimsfaraldur og tryggja að þær verði í samræmi við framtíðarsýn um kolefnishlutlaust borgarsamfélag og metnaðarfull loftslagsmarkmið borgarinnar.

Endurreisn Íslands eftir heimsfaraldurinn mun kalla á mikla fjárfestingu, að tækifæri verði sköpuð og störf búin til. Reykjavík ætlar því að velja grænu leiðina út úr kreppunni með því að stilla upp fjármálum, fjárfestingu, framkvæmdum og atvinnusköpun næstu ára með grænum hætti. Þá munu grænar áherslur verða ráðandi í fjárhagsáætlun næsta árs og fimm ára áætlunar.

Græna planið tekur til 13 þátta í borginni en á næstu vikum mun borgarstjóri efna til samráðs um alla þættina með fyrirtækjunum í borginni, aðilum vinnumarkaðarins og  eiga viðræður við ríkisstjórn um græna atvinnusköpun, flýtingu stórra framkvæmda og fjárfestingar fyrir sjálfbæra ferðaþjónustu.

Græna planið leggur áherslu á að skapa fjölda starfa við uppbyggingu, nýsköpun og skapandi verkefni. Ný hverfi verða byggð og græn svæði fegruð og tengd með grænu neti. Þá verði Borgarlínan, hjólandi og gangandi sett í algjöran forgang í samgöngumálum.

Reykjavík var lánsöm að pólitísk samstaða náðist um þrettán skýrar aðgerðir sem fyrstu viðbrögð við Kórónaveirunni. Starfsfólk og kjörnir fulltrúar stóðu þétt saman að neyðarstjórn og við að halda nauðsynlegri þjónustu gangandi gegnum þennan erfiða tíma í vetur. Nú er komið að næsta skrefi og það verður grænt.

Græna planið