Reykjavík í fimmta sæti yfir lífsgæðaborgir

Velferð

""

Viðskiptaháskólinn IESE í Barselóna hefur sett Reykjavík í fimmta sæti yfir sjálfbærar og snjallar borgir.

Styrkleikar Reykjavíkur felast einna helst í loftslagsmálum en útreikningar háskólans sýna að Reykjavíkurborg er í fyrsta sæti hvað þau varðar. Listi IESE, Cities in Motion hefur verið gefinn út í sex ár og er þetta annað árið í röð sem Reykjavíkurborg lendir í fimmta sæti á honum.

„Reykjavík lendir þarna í annað sinn í fimmta sæti af 174 borgum sem háskólinn mælir og er það mikil viðurkenning fyrir okkur og þau lífsgæði sem borgin býður upp á. Þetta er auðvitað frábær árangur sem við getum öll verið stolt af enda er þetta ein mikilvægasta lífsgæðamæling á borgum sem framkvæmd er í heiminum,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

Á toppnum á listanum trónir London, New York er í öðru sæti, Amsterdam í þriðja og París í fjórða sæti. Kaupmannahöfn er í áttunda sæti og hafa Danir hampað þeim árangri.

Í tilkynningu IESE kemur fram að listinn gefi raunsanna mynd þróun borga en við gerð hans eru ýmsir þættir metnir, svo sem hagkerfi, borgarskipulag, loftslagsmál og ýmsir innviðir.

IESE telur Reykjavík standa mjög framarlega í loftslagsmálum, tækniþróun og samheldni borgarbúa. Veikleikar borgarinnar liggi hins vegar í núverandi borgarskipulagi og mannauði. Borgarstjóri segir að Reykjavík og höfuðborgarsvæðið allt hafi góð tækifæri til að bæta sig þar sem unnið sé á fullu að þéttingu byggðar, Borgarlínu og bættum innviðum fyrir hjólreiðar og almenningssamgöngur. „Við höfum græna raforku, hitaveitu og tækniinnviðir eru traustir þar sem borgin er leiðandi á heimsvísu í ljósleiðaratengingum og nethraða. Svo bætist allt hitt við sem við erum að vinna að til að gera höfuðborgina að einnþá meiri lífsgæðaborg,“ segir borgarstjóri.