Rafrænar ábendingar til Barnaverndar

Velferð

""

Búið er að opna tilkynningarsíðu Barnaverndar á heimasíðu Reykjavíkurborgar en þar er hægt að velja hnapp eftir eðli mála.

Á síðunni er hægt að velja rafrænan ábendingarhnapp sem sendir tilkynningar til Barnaverndar Reykjavíkur þegar ástæða þykir til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, verði fyrir áreitni, ofbeldi eða að barnið stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu.

Annar hnappur á síðunni er vegna tilkynninga ef ástæða er til að ætla að atferli starfsfólks, sem starfa sinna vegna hefur samskipti við börn, sé stórlega ábótavant.

Þriðji og síðasti hnappurinn á síðunni leiðir fólk að sambærilegri síðu á ensku og pólsku.

Síðan er hluti af aðgerðaráætlun velferðarsviðs um barnaverndarúrræði og aðra þjónustu við börn í kjölfar máls sem upp kom vegna starfsmanns, sem starfaði með börnum.

Hnapparnir gera almennum borgurum kleift að tilkynna á fljótlegan hátt um misfellur í aðbúnaði barna eða tilkynna um hegðun einstaklings, sem starfar með börnum. Áfram er hægt að tilkynna til Barnaverndar Reykjavíkur í síma 411 1111 og í 112 í neyðartilvikum eftir lokun og einnig er hægt að senda á netfangið, barnavernd@reykjavik.is