Óskað eftir tilnefningum til mannréttindaverðlauna Reykjavíkur 2023

Mannréttindi

Austurvöllur í blíðskaparveðri.

Tilnefna má einstaklinga, hópa, félagasamtök eða stofnanir sem á eftirtektarverðan hátt hafa staðið vörð um mannréttindi.

Tilnefningar ásamt rökstuðningi skulu berast á netfangið mannrettindi@reykjavik.is

Frestur til að skila tilnefningum er til 2. maí 2023.

Handhafi mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar hlýtur að launum kr. 600.000,-

Markmið mannréttindaverðlaunanna er að vekja athygli á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og mikilvægi samfélags þar sem mannréttindi eru virt. 

Dómnefnd til verðlaunanna er skipuð af mannréttinda- og ofbeldisvarnarráði Reykjavíkurborgar til eins árs í senn. Hana skipa þrír einstaklingar sem hafa haft aðkomu að jafnréttis- og mannréttindamálum í sínum störfum.

Áður hafa hlotið mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar:

  • Alþjóðahús 2008
  • Rauði Kross Íslands 2009
  • Blátt áfram 2010
  • Hinsegin dagar 2011
  • List án landamæra 2012
  • Kvennaathvarfið 2013
  • Geðhjálp 2014
  • Frú Ragnheiður 2015
  • Þórunn Ólafsdóttir 2016
  • Með okkar augum 2017
  • Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi W.O.M.E.N. á Íslandi 2018
  • Móðurmál samtök um tvítyngi 2019
  • Solaris hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi 2020
  • Rótin félag um konur, áföll og vímugjafa 2021
  • Pepp Ísland samtök fólks í fátækt 2022