Opinber heimsókn forsetahjóna Íslands til Reykjavíkur 

Stjórnsýsla

Reykjavík séð frá vesturborginni og yfir Esjuna.

Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid koma í opinbera heimsókn til Reykjavíkur á fimmtudaginn, 23. nóvember. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og eiginkona hans, Arna Dögg Einarsdóttir, taka á móti forsetahjónunum í Ráðhúsi Reykjavíkur og munu fylgja þeim vítt og breitt um borgina. Heimsókn forsetahjónanna verður sérstaklega fagnað með opnum viðburði á Kjarvalsstöðum klukkan 17 þar sem boðið verður upp á skemmtilega dagskrá.

Forsetahjónin munu kynna sér starfsemi borgarinnar með sérstaka áherslu á framþróun Reykjavíkurborgar og nýja samfélagsgerð. Skólahljómsveit Vestur- og Miðbæjar tekur á móti þeim ásamt borgarstjórahjónunum og hefja þau daginn á að heilsa upp á starfsfólk borgarinnar sem og starfsfólk Grindavíkurbæjar sem er með aðstöðu í Ráðhúsinu um þessar mundir.   

Þétt dagskrá verður fyrir forsetahjónin allan daginn enda mikið að sjá og gera í höfuðborginni. Munu þau meðal annars heimsækja íslenskuver í Breiðholtsskóla, hitta börnin í fjölmenningarlega leikskólanum Ösp, funda með unglingum í Breiðholti, kynna sér félagsstarf ungra foreldra og eldri borgara og heimsækja Smiðjuna, sem er virknimiðstöð fyrir fatlað fólk í Grafarvogi. Þá verður samfélagshúsið í Úlfarsárdal sótt heim en það tengir saman Dalskóla, Borgarbókasafnið, íþróttahús Fram og Dalslaug, nýjustu sundlaug Reykvíkinga.  

Borgarstjórahjónin munu einnig fylgja gestum sínum um kvikmyndaþorpið í Gufunesi og í Elliðaárdal þar sem starfsemi Orkuveitunnar hefur öðlast nýtt líf á þessum sögulega og fallega stað. 

Um kvöldið verður hátíðarkvöldverður í Höfða en fyrst verður borgarbúum og öðrum gestum boðið að hitta forsetahjónin á Kjarvalsstöðum, þar sem boðið verður upp á fjölbreytt skemmtiatriði fyrir alla fjölskylduna.   

Verið öll velkomin á Kjarvalsstaði milli klukkan 17 og 19.  

Nánari upplýsingar um dagskrá verða sendar út síðar.