Opin leiksvæði endurgerð um alla borg

Umhverfi

""

Opin leiksvæði við Bogahlíð, Bústaðaveg, Seiðakvísl, Snæland og Öldugötu verða endurgerð í sumar. Áætlaður kostnaður er 120 milljónir króna.

Endurgerðin felur í sér landmótun, endurnýjun gróðurbeða, leiktækja og yfirborðsefna eftir þörfum. Áhersla er á öryggismál eins og fallvarnarefni og bætta lýsingu og aðgengi fyrir alla.

Forgangsraðað með ástandsskoðun

Við endurgerðina er reynt að horfa til sem flestra hópa og gætt að aðgengi inn á svæðin. Þessi leiksvæði sem urðu fyrir valinu í ár eru komin á tíma en búið er að forgangsraða leiksvæðunum með ástandsskoðun. Það sem hægt er að nýta verður nýtt áfram á meðan öðru er skipt út.

Þess er gætt að endurnýja opin leiksvæði um alla borg. Framkvæmdum er forgangsraðað innan hvers hverfis fyrir sig þannig að unnið sé þvert á borgina. Opin leiksvæði eru önnur leiksvæði en þau sem eru við grunnskóla og leikskóla.

Útboð verða opnuð í maí. Búist er við að framkvæmdir hefjist í lok mánaðar og að þær standi fram í október.

Hér er hægt að skoða kort yfir öll opin leiksvæði í borginni.

Hér er hægt að skoða teikningar af leiksvæðunum:

Bogahlíð

Bústaðavegur

Seiðakvísl

Snæland

Öldugata