Opið fyrir umsóknir um styrki úr Miðborgarsjóði 2019

Samgöngur Umhverfi

""

Við hvetjum alla til að sækja um hvort sem um er að ræða hagsmuna- eða grasrótarsamtök, fyrirtæki eða einstaklingar. Hægt er að sækja um styrki úr Miðborgarborgarsjóði til og með 29. apríl næstkomandi.

 

Markmið Miðborgarsjóðsins er að stuðla að því að miðborgin sé góður staður til búsetu sem og áhugaverður og aðlaðandi áfangastaður fyrir íbúa og aðra hagsmunaaðila borgarinnar, landsmenn alla og erlenda gesti.

Lögð er áhersla á að styrkja verkefni sem hvetja til fjölbreytni, frumkvæðis, nýsköpunar og rannsókna í eflingu miðborgarinnar.

Sérstök áhersla er lögð á að styrkja verkefni sem eru í samræmi við leiðarljós stefnu Reykjavíkurborgar um málefni miðborgar, en þau eru:

  • Heildstæð miðborg
  • Miðborg allra
  • Aðlaðandi miðborg
  • Fjölbreytt miðborg
  • Vel tengd og vistvæn miðborg

Heildarfjárhæð styrkja fyrir árið 2019 er kr. 30.000.000. 

Allar nánari upplýsingar og rafrænt umsóknarferli er að finna á heimasíðu sjóðsins

www.reykjavik.is/midborgarsjodur