Opið fyrir umsóknir í D-sal Hafnarhússins

Atvinnumál Mannlíf

""

Listasafn Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum listamanna til að sýna í D-sal Hafnarhússins árið 2019. 

Listasafn Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum listamanna til að sýna í D-sal Hafnarhússins árið 2019. Nýtt fyrirkomulag á vali listamanna í sýningarröðinni hefur verið tekið upp í Listasafni Reykjavíkur með það að markmiði að gefa listamönnum með skamman feril að baki tækifæri til að beina athygli að listsköpun sinni.

Sýningarröðin í D-sal Hafnarhússins hóf göngu sína árið 2007 og þar hafa rúmlega þrjátíu listamenn sýnt verk sín. Á sýningunum eru kynntir til leiks listamenn sem hafa sterka og persónulega listræna sýn en hafa ekki áður haldið einkasýningu í opinberu safni.

Í D-sal gefst listamönnum tækifæri til að kynnast af eigin raun þeim innviðum sem opinbert listasafn styðst við í starfsemi sinni. Um leið opnast gestum safnsins innsýn í nýjar stefnur og strauma í samtímalist.

Við val á listamönnum til sýninga í D-sal er gerðs ú krafa að þeir hafi ekki áður haldið einkasýningu í opinberu listasafni en hafi tengsl við íslenskt listalíf í gegnum nám, sýningar og/eða búsetu á Íslandi. Með umsókninni skal fylgja ferilskrá ásamt stuttri lýsingu á inntaki og efnistökum sem viðkomandi hyggst vinna út frá á fyrirhugaðri sýningu (hámark 250 orð). Að auki fimm ljósmyndir af fyrri verkum. Sérskipuð dómnefnd velur úr umsóknum.

Umsóknir berist fyrir lok dags, 31. ágúst 2018 á netfangið listasafn@reykjavik.is merktar „D-2019“. Fyrirspurnir berist á sama netfang.