Olíumengun barst í hreinsistöðina í Klettagörðum

Umhverfi Heilbrigðiseftirlit

""

Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur barst tilkynning frá Veitum síðastliðinn fimmtudag um að olía væri að berast inni í hreinsistöðina í Klettagörðum.  Um talsvert magn var að ræða og megna lykt lagði um stöðina. Olían kom frá notanda í kerfinu en hreinsistöðin í Klettagörðum tekur við fráveituvatni frá stórum hluta höfuðborgarsvæðisins og því afar erfitt að rekja uppruna mengunarinnar.

Fyrirtæki kanni ástandið

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vill í ljósi þessa hvetja fyrirtæki til að kanna ástand olíuskilja og tryggja að búnaðurinn virki sem skildi.  Einnig skoða geymslu á úrgangsolíu, stöðu í úrgangsolíutönkum og niðurföll í geymsluaðstöðu fyrir olíu og spilliefni. 

Nauðsynlegt að bregðast fljótt við

Heilbrigðiseftirlitið bendir á nauðsyn þess að geyma olíu- og spilliefni í lekabyttum eða lekaþróm og gæta þess að þessi efni séu ekki geymd í nágrenni við niðurföll.  Verði óhapp og olía eða önnur mengandi efni berast í fráveitu skal þegar tilkynna slíkt til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.  Nauðsynlegt er að bregðast fljótt við til að lágmarka skaðann.