Óhagnaðardrifin íbúðafélög geti byggt um tvö þúsund íbúðir  

Framkvæmdir Mannréttindi

Íbúðir Bjargs við Hallgerðargötu á Kirkjusandi.

Lóðaúthlutunaráætlun Reykjavíkurborgar til óhagnaðardrifinna íbúðafélaga á næstu tíu árum þýðir áframhaldandi stórfellda uppbyggingu félagslegs húsnæðis í borginni.  

Lóðarvilyrði og viljayfirlýsingar til fimm slíkra félaga voru samþykkt í borgarráði í síðustu viku. Þau þýða að félögin geta byggt um tvö þúsund íbúðir á næstu árum. Lóðaúthlutun til óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga hefur verið hryggjarstykkið í húsnæðisstefnu Reykjavíkurborgar. 

Bjarg með 905 íbúðir

Bjarg, íbúðafélag verkalýðshreyfingarinnar hefur byggt upp leiguíbúðir fyrir félagsfólk af miklum krafti á undanförnum árum. Á tveimur næstu árum verður lokið við að uppfylla viljayfirlýsingu við félagið frá 12. mars 2016 um 1.000 íbúðir í Reykjavík. Bjarg hyggst byggja um 100 íbúðir í Reykjavík á ári eftir það til að mæta þörf sinna félaga. Reykjavíkurborg hefur þegar veitt Bjargi lóðarvilyrði fyrir um 210 íbúðir á fjórum lóðum sem fara í byggingu á næstu misserum. Borgarráð samþykkti einnig tillögu um vilyrði fyrir allt að 190 íbúðir á fjórum lóðum sem gert er ráð fyrir að komi til úthlutunar á árunum 2022-2024. Því til viðbótar var samþykkt viljayfirlýsing fyrir allt að 505 íbúðir sem gert er ráð fyrir að komi til úthlutunar á árunum 2024-2028. Að teknu tilliti til þeirra lóða sem Bjarg þegar hefur fengið úthlutað eða vilyrði fyrir er gert ráð fyrir að Bjarg geti á næstu árum byggt allt að 905 íbúðir á 17 reitum sem eru staðsettir víða um borgina.

Byggingarfélag námsmanna með 205 íbúðir

Byggingarfélag námsmanna hefur einnig byggt á grunni viljayfirlýsinga sem borgin mun uppfylla á næstu tveimur árum og gera félögin ráð fyrir að byggja áfram í jöfnum takti næstu árin. Borgarráð hefur samþykkt lóðarvilyrði fyrir um 65 íbúðir fyrir námsmenn í Arnarbakka. Gert er ráð fyrir að lóðinni verði úthlutað á þessu ári. Auk þess var samþykkt viljayfirlýsing fyrir um 140 íbúðir á þremur lóðum sem gert er ráð fyrir að úthlutað verði á árunum 2025-2027. Samkvæmt þessu getur Byggingarfélag námsmanna byggt allt að 205 íbúðir á fjórum lóðum.

Búseti getur byggt 335 íbúðir

Búseti hefur á síðustu árum byggt upp af krafti í takt við viljayfirlýsingu við borgina og hefur í auknum mæli farið í samstarf við önnur óhagnaðardrifin félög. Búseti hyggur á frekari byggingarframkvæmdir í jöfnum takti næstu árin. Borgarráð samþykkti lóðarvilyrði fyrir um 70 íbúðir á tveimur lóðum sem gert er ráð fyrir að verði úthlutað á árunum 2023-2024. Til viðbótar var samþykkt viljayfirlýsing um allt að 265 íbúðir á fjórum lóðum sem gert er ráð fyrir að verði úthlutað á árunum 2025-2028. Búseti mun því geta byggt um 335 íbúðir á næstu árum.   

Íbúðakjarnar Félagsbústaða með 151 íbúð

Félagsbústaðir hafa á undanförnum árum byggt talsvert af íbúðakjörnum fyrir fatlað fólk. Auk þess hafa Félagsbústaðir fest kaup á íbúðum til útleigu. Borgarráð samþykkti lóðarvilyrði fyrir allt að 24 íbúðir á tveimur lóðum. Gert er ráð fyrir að þeim verði úthlutað á næsta ári.  Til viðbótar var samþykkt viljayfirlýsing um allt að 93 íbúðir sem gert er ráð fyrir að verði úthlutað á árunum 2025-2029. Þegar hafa Félagsbústaðir fengið úthlutað  lóðum fyrir allt að 35 íbúðir. Samkvæmt þessu vilyrðum er gert ráð fyrir að Félagsbústaðir geti byggt íbúðakjarna með um 151 íbúð.

Félagsstofnun stúdenta með 361 íbúð

Félagsstofnun stúdenta hefur byggt  fjölda stúdentaíbúða á Háskólasvæðinu en einnig í Brautarholti, Fossvogi og við Lindargötu. Samþykkt var lóðarvilyrði fyrir allt að 12 íbúðir við Vatnsstíg. Gert er ráð fyrir að lóðinni verði úthlutað síðar á þessu ári. Þá samþykkti borgarráð  viljayfirlýsingu fyrir um 239 íbúðir á fjórum lóðum sem gert er ráð fyrir að verði úthlutað á árunum 2025-2028. Þegar hefur Félagsstofnun stúdenta fengið vilyrði fyrir allt að 110 íbúðum í Skerjafirði. Félagsstofnun stúdenta getur því byggt allt að 361 stúdentaíbúð á næstu árum.