Nýtt íþróttahús og glæsileg æfingasundlaug við Klettaskóla

Skóli og frístund

""

Fjölmenni var við athöfn í Klettaskóla í dag þegar nýtt og glæsilegt íþróttahús og æfingasundlaug fyrir fatlaða nemendur var tekin í notkun.

Mikil eftirvænting og gleði ríkti í Klettaskóla þegar nýja íþróttahúsið með glæsilegri aðstöðu til sundþjálfunar var tekið í notkun. Skólakórinn söng við athöfnina og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri flutti ávarp. Þar sagði hann m.a.: 

„Þessi nýbygging markar tímamót fyrir bæði nemendur og kennara í Klettaskóla. Hér er ekki bara risin glæsileg viðbygging sem fellur vel inn í umhverfið, heldur uppfyllir íþróttahúsið og sundlaugaraðstaðan allar nútímakröfur um aðgengi og þjálfun fyrir fatlaða nemendur og gjörbyltir aðstöðu þeirra til íþróttaiðkunar.“

Nýi íþróttasalurinn er 1.755 fermetrar og búinn margvíslegum æfingatækjum. Í sundlaugarsalnum eru tvær laugar og einn pottur. Stærri laugin er 8m x 16,7m og er með fjórum brautum. Minni þjálfunarlaug er með lyftanlegum botni. Við opnun laugarinnar í dag sýndu nemendur æfingalaugina en íþróttafélagið Ösp mun hafa þar aðstöðu. 

Framkvæmdir við viðbyggingu við Klettaskóla hófust vorið 2015, en áætlaður kostnaður við hana og endurgerð á eldra húsnæði og lóð er áætlaður um þrír milljarðar króna. Lokið er við tengibygginu þar sem anddyri skólans er og hafa verið sett upp fatahengi og rúmgóð aðstaða til að taka á móti nemendum.  Í nýrri viðbyggingu verður líka fullkomin frístundaaðstaða og félagsmiðstöð. 

Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við viðbyggingu verði að fullu lokið í ágúst þegar nýtt skólaár hefst. Arkitektastofan OG, VSÓ Ráðgjöf og Efla sáu um hönnun viðbyggingarinnar.

Klettaskóli er sérskóli á grunnskólastigi með fjölbreyttan hóp nemenda með ólíkar þarfir í námi, líkamlegri þjálfun og félagslífi sem kallar á mikinn sveigjanleika í húsnæði og öllum búnaði. Líkamleg hreyfing og þjálfun er nemendum afar mikilvæg og er aðstaða með nýrri þjálfunarsundlaug og íþróttasal því afar kærkomin.

Í Klettaskóla er aðstaða fyrir 80-100 nemendur en skólinn þjónar öllu landinu. Skólinn varð til við samruna Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla. 
Skólastjóri er Árni Einarsson.