Nýr samningur við Borgarleikhúsið

Mannlíf Menning og listir

""

Samningur borgarinnar við Leikfélag Reykjavíkur framlengdur til þriggja ára

Fulltrúar Leikfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar hafa undirritað samning um framlengingu til þriggja ára um rekstur Borgarleikhússins. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, og Eggert Benedikt Guðmundsson, formaður stjórnar Leikfélags Reykjavíkur, undirrituðu samninginn ásamt Kristínu Eysteinsdóttur, leikhússtjóra Borgarleikhússins.

“Öflugt menningarlíf eykur lífsgæði borgarbúa og með samningnum er borgarbúum gert kleift að njóta fjölbreyttra sviðslista. Starfið í Borgarleikhúsinu einkennist af miklum metnaði og eru gestir um 200 þúsund á ári hverju,” segir Dagur B. Eggertsson. “Í samningnum er sérstaklega kveðið á um að áhersla skuli lögð á listuppeldi barna og ungmenna og er ánægjulegt að sjá hve leikhúsið hefur sinnt því hlutverki vel í gegnum árin enda er barnamenning mikilvægur hluti af öllu menningarstarfi,” bætir Dagur við en í samningnum er tekið fram að listauppeldi barna og ungmenna sé sinnt sérstaklega.    

Markmiðið samningsins er að í Reykjavík sé rekið fjölbreytt og metnaðarfullt leikhús þar sem er sköpuð og sýnd leiklist í hæsta gæðaflokki. Einnig er tekið fram að Borgarleikhúsið verði lifandi vettvangur nýsköpunar og kynningar á íslenskri leiklist þar sem erlendri klassík og samtímaleiklist eru einnig gerð góð skil og að tryggja samfellu og framþróun í öflugu leiklistarstarfi. Þannig á starfið í Borgarleikhúsinu að höfða til borgarbúa og gera þeim kleift að njóta fjölbreyttra sviðslista.    

Kristín Eysteinsdóttir, Borgarleikhússtjóri, segir að samningurinn tryggi rekstrargrundvöll leikhússins og geri starfsfólki kleift að halda áfram því góða starfi sem hefur verið unnið í leikhúsinu síðustu ár. “Við erum afar þakklát fyrir meðbyr síðustu ára og horfum björtum augum fram á veginn. Við hlökkum til að örva hug og hjörtu áhorfenda á komandi leikári og þökkum Reykjavíkurborg fyrir gott samstarf og mikilvægan stuðning.

Samningur Reykjavíkurborgar og Leikfélags Reykjavíkur