Nýr Landspítali Háskólasjúkrahús - Frestur til athugasemda framlengdur
Nýr Landspítali Háskólasjúkrahús - Framlenging á fresti til að gera athugasemdir til 19. október næstkomandi.
Á fundi skipulagsráðs þann 19. september sl. var samþykkt að framlengja frest enn frekar til að gera athugasemdir við nýtt deiliskipulag fyrir Nýjan Landspítala Háskólasjúkrahús til 19. október nk. Það sama á við um tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur sem auglýst hefur verið samhliða nýju deiliskipulagi.