Nýmálað 1-Stærsta sýning á íslenska samtímamálverkinu

Mannlíf Menning og listir

""
Sýningin Nýmálað 1 verður opnuð í Hafnarhúsinu á Safnanótt,  föstudaginn  6. febrúar kl. 20. 
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnar sýninguna. Plötusnúðurinn Krystal Carma (Arnljótur Sigurðsson) spilar fyrir gesti frá kl. 20.30 til miðnættis. 
 
Á síðustu árum hefur verið mikil gróska í málaralist víða um heim. Nýjar áherslur og fjölbreytnin í málverki samtímans hefur vakið eftirtekt. Ísland er engin undantekning. Listamenn á öllum aldri, sem aðhyllast ólíkar liststefnur og hugmyndafræði, hafa valið málverkið sem sinn helsta listmiðil. Tilgangurinn með sýningunni er að gefa yfirlit um stöðu málverksins hér á landi.  Alls verða sýnd verk eftir 85 íslenska listmálara en öll verkin hafa verið gerð á síðustu tveimur árum. Svo víðtæk úttekt á íslensku samtímamálverki hefur ekki verið gerð áður. Sýningin er í tveimur hlutum og verður síðari hluti hennar Nýmálað 2 opnaður á Kjarvalstöðum í lok mars. Sýningarstjórar eru Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur og Kristján Steingrímur Jónsson, deildarforseti Myndlistardeildar Listháskóla Íslands.
 
Listsafn Reykjavíkur stendur fyrir viðamikilli dagskrá í tengslum við sýninguna.  Þar verður m.a. boðið upp á nokkur námskeið í listmálun fyrir unglinga undir handleiðslu listamanna á sýningunni. Málstofa verður haldin í tengslum við sýninguna og listamenn bjóða gestum upp á hádegisleiðsagnir. 
 
Sýningin stendur til 19. apríl 2015.
 
Listamenn á Nýmálað I:
Arnar Herbertsson, Baldvin Einarsson, Baltasar Samper, Davíð Örn Halldórsson, Einar Garibaldi Eiríksson, Guðný Kristmannsdóttir, Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, Helgi Þórsson, Hulda Vilhjálmsdóttir, Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir, Jón B.K. Ransu, Jón Henrysson, Jón Óskar, Kjartan Ólason, Kristinn Már Pálmason, Kristín Gunnlaugsdóttir, Logi Bjarnason, Magnús Helgason, Ómar Stefánsson, Pétur Halldórsson, Ragnar Kjartansson, Ragnar Þórisson, Sara og Svanhildur Vilbergsdætur, Sigtryggur Berg Sigmarsson, Sigurður Þórir og Úlfur Karlsson.