Nýjar siðareglur borgarstjórnar

Stjórnsýsla

Frá fundi borgarstjórnar

Borgarstjórn samþykkti í gær nýjar siðareglur fyrir borgarstjórn Reykjavíkurborgar.

Er þetta gert í samræmi við 29. grein sveitarstjórnarlaga þar sem fram kemur að sveitarstjórn skuli setja sér siðareglur sem skulu birtar opinberlega á vefsíðu sveitarfélagsins eða á sambærilegan hátt.

Á fundi forsætisnefndar þann 20. júlí 2018 var samþykkt að hefja endurskoðun gildandi siðareglna og unnið hefur verið að nýjum reglum á vinnufundum borgarstjórnar undir stjórn Sigurðar Kristinssonar prófessors. Vinnuhópur kjörinna fulltrúa vann svo tillögu að nýjum siðareglum. Hópinn skipuðu Pawel Bartoszek, Örn Þórðarson, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Jórunn Pála Jónasdóttir og skilaði hann tillögu að nýjum siðareglum sem lagðar voru fram og samþykktar á fundi borgarstjórnar 18. júní sl.

SIÐAREGLUR kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg

  1. Við vinnum fyrir fólkið í borginni og pössum upp á Reykjavík sem heimili komandi kynslóða.
  2. Við erum heiðarleg, ábyrg, og sýnum gott fordæmi í okkar störfum.
  3. Við kynnum okkur málin og mætum undirbúin til starfa.
  4. Við segjum satt en gætum trúnaðar þegar trúnaður þarf að ríkja.
  5. Við veitum almenningi og fjölmiðlum nauðsynlegar upplýsingar.
  6. Við hugum að því að það sé gott að vinna hjá Reykjavíkurborg.
  7. Við förum vel með fjármuni borgarinnar og eignir hennar.
  8. Við virðum margbreytileikann og vinnum gegn hvers kyns fordómum.
  9. Við sýnum kurteisi, tillitsemi og virðum einkalíf annarra.
  10. Við biðjumst afsökunar á mistökum og hlýðum á afsökunarbeiðnir.
  11. Við erum meðvituð um að við höfum ólíkar skoðanir.

Samþykkt á fundi borgarstjórnar 18. júní 2019