Nýir tímar í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu

Samgöngur Stjórnsýsla

""

Sáttmáli milli ríkis og sex sveitarfélaga um uppbyggingu á fjölbreyttum samgöngum.

Ríkið og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes hafa undirritað tímamótasamkomulag um metnaðarfulla uppbyggingu á samgönguinnviðum og almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu til fimmtán ára. Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins var undirritaður af forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og bæjarstjórum sveitarfélaganna sex á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum síðdegis í dag.

Öryggi, loftslagsmarkmið og fjölbreyttar samgöngur

Samkomulagið felur í sér sameiginlega framtíðarsýn og heildarhugsun fyrir skipulagssvæðið. Markmiðið er að auka öryggi, bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta og minnka tafir, stórefla almenningssamgöngur og draga úr mengun af völdum svifryks og losun gróðurhúsa-lofttegunda til að standa við loftslagsmarkmið stjórnvalda og sveitarfélaga.

Markmið samkomulagsins eru fjórþætt:

  • Tryggja greiðari samgöngur, minnka tafir og styðja við fjölbreyttari ferðamáta. 
  • Byggja upp sjálfbært kolefnishlutlaust borgarsamfélag með bættum almenningssamgöngum, orkuskiptum og breyttum ferðavenjum.
  • Sérstök áhersla á umferðaröryggi og að draga stórlega úr slysum á fólki.
  • Rík áhersla á að tryggja samvinnu og sameiginlega sýn á verkefnið.

Fjárfesting upp á 120 milljarða króna

Á næstu 15 árum verður ráðist í einar umfangsmestu samgönguframkvæmdir sögunnar til að flýta úrbótum á höfuðborgarsvæðinu, sem að óbreyttum framkvæmdahraða tækju allt að 50 ár. Mengun vegna svifryks og losun gróðurhúsalofttegunda hefur stóraukist. Ef fram heldur sem horfir og ekkert verður að gert mun bílaumferð aukast um að minnsta kosti 40% á næstu 15 árum. Til að mæta þessu er nauðsynlegt að flýta samgönguframkvæmdum.

Heildarfjármögnun samgönguframkvæmda á svæðinu á tímabilinu er 120 milljarðar. Ríkið mun leggja fram 45 milljarða og sveitarfélög 15 milljarða. Gert er ráð fyrir að sérstök fjármögnun standi straum af 60 milljörðum kr. Hún verður tryggð við endurskoðun gjalda af ökutækjum og umferð í tengslum við orkuskipti eða með beinum framlögum við sölu á eignum ríkisins.

Á tímabilinu verða 52,2 milljarðar lagðir í stofnvegi, 49,6 milljarðar í innviði Borgarlínu og almenningssamgöngur, 8,2 milljarðar í göngu- og hjólastíga, göngubrýr og undirgöng og 7,2 milljarðar í bætta umferðarstýringu og sértækar öryggisaðgerðir. Þá verður þegar í stað ráðist í að innleiða stafræna umferðarstýringu á höfuðborgarsvæðinu.

Við útfærslu framkvæmda verður sérstaklega hugað að greiðri tengingu aðliggjandi stofnbrauta svo sem Sundabrautar inn á stofnbrautir höfuðborgarsvæðisins.

Félag í eigu ríkis og sveitarfélaga verður stofnað um framkvæmdirnar og fjármögnun þeirra. Ríkið skuldbindur sig til að leggja uppbyggingarland að Keldum inn í félagið og mun ábati af þróun þess renna til uppbyggingar samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

Sérstök fjármögnun

Vegakerfið á Íslandi hefur verið fjármagnað með bensín- og olíugjöldum. Hlutfall vistvænna ökutækja eykst hratt og segja spár að strax árið 2025 hafi tekjur af bensín- og olíugjöldum lækkað verulega.

Endurskoðun stendur nú yfir á tekjustofnum ríkisins vegna ökutækja og eldsneytis vegna orkuskipta. Hluti þeirrar vinnu verður að breyta gjaldtöku með þeim hætti að í ríkari mæli verði treyst á gjöld af umferð í stað bensín- og olíugjalda. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir að félagið, sem stofnað verður um framkvæmdirnar, geti innheimt svonefnd flýti- og umferðargjöld sem yrðu liður í breyttri gjaldtöku ríkisins. Önnur fjármögnun félagsins gæti verið í formi sérstakra ríkisframlaga eða hlutdeild í öðrum tekjustofnum tengdum samgöngum.

Áform eru um að taka upp sértæka gjaldtöku víðar á landinu til að fjármagna stærri samgönguframkvæmdir og rekstur jarðganga. Dæmi um þetta eru tvöföldun Hvalfjarðarganga, Sundabraut, brú yfir Ölfusá, brú yfir Hornafjarðarfljót, nýr vegur yfir Öxi ásamt láglendisvegi um Mýrdal og jarðgöng í gegnum Reynisfjall.

Helstu framkvæmdir samkvæmt samkomulaginu

 

Framkvæmdir   Upphaf Lok

Vesturlandsvegur: Skarhólabraut – Hafravatnsvegur      2019       2020

Reykjanesbraut: Kaldárselsvegur – Krísuvíkurvegur         2019       2020

Suðurlandsvegur: Bæjarháls – Vesturlandsvegur              2021       2021

Reykjanesbraut: Gatnamót við Bústaðaveg         2021      2021

Arnarnesvegur: Rjúpnavegur – Breiðholtsbraut 2021      2021

Sæbrautarstokkur: Vesturlandsvegur – Holtavegur          2021       2022

Borgarlína: Ártún – Hlemmur     2021      2023

Borgarlína: Hamraborg – Hlemmur          2021      2023

Miklabrautarstokkur: Snorrabraut – Rauðarárstígur        2022       2023

Borgarlína: Hamraborg – Lindir  2023      2024

Borgarlína: Mjódd – BSÍ 2024      2026

Miklabrautarstokkur: Rauðarárstígur – Kringlumýrarbraut            2024      2026

Reykjanesbraut: Álftanesvegur – Lækjargata      2024      2028

Suðurlandsvegur: Norðlingavað – Bæjarháls       2027      2027

Borgarlína: Kringlan – Fjörður    2027      2030

Hafnarfjarðarvegur: Stokkur í Garðabæ 2028      2030

Borgarlína: Ártún – Spöng           2029      2031

Borgarlína: Ártún – Mosfellsbær              2031      2033

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra

„Til þess að ná loftslagsmarkmiðum okkar verðum við að styðja við breyttar ferðavenjur og gera það að raunhæfum valmöguleika fyrir fólk að geta nýtt sér almenningssamgöngur og fjölbreytta ferðamáta. Ég er ánægð með áherslur samkomulagsins í þessa veru sem munu styðja við að draga úr loftmengun og losun gróðurhúsalofttegunda.“

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra

„Hér er verið að fara í sérstak átak til að greiða fyrir betri samgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Við mörkum með þessu stefnu til framtíðar til að taka á umferðarvanda sem ekki verður unað við lengur. Við ætlum að bæta lífsgæði þeirra sem eru á ferðinni. Með því að draga úr umferðartöfum fjölgum við stundum með fjölskyldu og vinum um leið og framleiðni atvinnulífs vex. Við stuðlum að raunverulegum valkostum um ferðamáta og bætum umhverfið um leið.“

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra

„Tíminn er stöðugt mikilvægari þáttur í  lífsgæðum, við viljum ráða því sem mest sjálf hvernig við verjum tíma okkar. Tíminn sem fer í umferðarflækjur er ekki aðeins óhagstæður fyrir efnahaginn heldur gengur hann á þann tíma sem við ætlum okkur með fjölskyldu og vinum. Betri umferðarmannvirki, svo sem breikkun stofnbrauta, og betri tenging höfuðborgarsvæðisins með Sundabraut, stuðla að bættri og öruggari umferð, færri slysum. Áhersla mín á öflugar samgöngur um allt land er komin til vegna þess að ég trúi því að öflugar samgöngur séu hluti af sterkara samfélagi. Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins er mikilvægur hluti af þeirri sýn.“

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur

„Þetta er stærsta og grænasta uppbyggingaráætlun í samgöngumálum í sögu borgarinnar. Samkomulagið markar algjör tímamót, í samgöngum, í samstarfi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu en ekki síður í samstarfi sveitarfélaganna við ríkið. Við erum í sameiningu að boða nýja tíma í öllum tegundum samgangna. Þetta þýðir að Borgarlína verður að veruleika, hágæðaalmenningssamgöngur sem fara í framkvæmd eftir tvö ár. Miklabraut fer í stokk, hjólastígum verður stórfjölgað og risaskref er tekið í þá veru að standa við loftslagsskuldbindingar Íslands. Og er ég sérstaklega ánægður að framkvæmdir sem á venjulegum hraða hefðu tekið 50 ár verður núna hrint í framkvæmd á 15 árum.“

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og formaður SSH

„Hér verður um að ræða byltingu í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu og öllum samgöngumöguleikum gert hátt undir höfði. Brýnar framkvæmdir á stofnvegum til að auka öryggi og flæði vegfarenda verða loks að veruleika og það mun fyrr en áform voru áður um. Einnig er gert ráð fyrir gjörbreyttri og nútímalegri umferðarljósastýringu en við þekkjum. Almenningssamgöngur, hjóla- og göngustígar verða einnig stórefldir og þeir ferðamátar gerðir að raunverulegum valkosti. Í Hafnarfirði er gert ráð fyrir umtalsvert meira fjármagni til að leysa umferðarhnúta við Reykjanesbraut/Lækjargötu/Álftanesveg og sjáum við Hafnfirðingar nú fram á að umferðarteppur í gegnum bæinn leysist á allra næstu árum.“

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs

„Samkomulagið felur í sér grundvallarbreytingar á samgöngum höfuðborgarsvæðisins sem ég hef kallað „stóra samgönguplanið“ og allir njóta góðs af, bæði þeir sem búa í eldri byggðum og í nýrri hverfum. Í Kópavogi verður stærsta breytingin sú að lögð verður innan skamms tíma brú yfir Fossvog og Arnarnesvegur er á næsta leyti. Nú ríður á að vel sé haldið utan um fjármögnun og framkvæmdakostnað þessa risaverkefnis“.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar

„Ég er ánægður með að tekist hafi að semja um nálgun að heildarlausn á umferðarmálum á höfuðborgarsvæðinu. Höfuðborgarsvæðið hefur setið eftir og með þessu samkomulagi er bætt úr því auk þess sem við færumst nær markmiðum um loftslagsmál með þeim framkvæmdum sem eru fyrirhugaðar.“

Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar

„Þetta er risastórt skref í samgöngumálum fyrir höfuðborgarsvæðið og mun án efa stytta ferðatíma íbúa, bæði þeirra sem ferðast með bílum sem og þeirra sem nota almenningssamgöngur. Fyrir Mosfellinga er ánægjulegt að skrefum að bættum almenningssamgöngum verður flýtt.“

Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri Seltjarnarness

„Með þessu tímamótasamkomulagi verður uppbyggingu í samgöngumálum hraðað til muna í samstarfi við ríkið. Umferðaröryggi íbúanna mun aukast með bættum umferðarmannvirkjum og almenningssamgöngur stórbættar. Umferðartafir munu minnka og gæðatími fjölskyldunnar eykst, sem mun hafa jákvæð áhrif á lífsgæði íbúa á höfuðborgarsvæðinu.“

Sáttmálinn í tölum

Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu - Kynning

Myndbandið um samkomulagið