Ný gatnamót á Sæbraut við Frakkastíg

Samgöngur Umhverfi

""

Frakkastígur verður tengdur Sæbraut með nýjum gatnamótum og hefjast framkvæmdir á næstu dögum.  Auk framlengingar á Frakkastíg út að Sæbraut verður gatan endurgerð milli Skúlagötu og Lindargötu.  

25.6.2019 - Verkið er á áætlun.

Verktaki stefnir að því að klára gatnamót Sæbrautar og Snorrabrautar um mánaðarmót júní / júlí, gatnamót Sæbrautar og Katrínartúns um mánaðarmót júlí / ágúst og gatnamót Sæbrautar og Frakkastígs fyrir lok ágúst.

Gatnamótin nýju verða ljósastýrð og mun það bæta mjög öryggi gangandi vegfarenda, en margir þeirra, sérstaklega ferðamenn, fara þvert yfir Sæbrautina frá Frakkastíg að Sólfarinu og hefur þar oft legið við slysum.

Hluti af framkvæmdinni er uppsetning götulýsingar, færsla á strætóbiðstöð og göngustígar. Snjóbræðslu verður komið fyrir og lagnir veitustofnana endurgerðar. Að nýframkvæmdum loknum verður núverandi tengigata á móts við Skúlagötu 20 og það sem henni tilheyrir fjarlægt og tyrft yfir svæðið.

Fleiri framkvæmdir á Sæbraut eru á dagskrá. Tvenn önnur gatnamót verða endurbætt, annars vegar við Snorrabraut og hins vegar við Katrínartún.  Umferðarljósabúnaður, gönguleiðir yfir gatnamótin og götulýsing verður endurbætt á báðum stöðum og þá verður hægri beygjurein til austurs frá Snorrabraut út á Sæbraut lögð af.

Tengt efni: