Neyðarskýli opnuð fyrr í dag

Velferð

Fólk við anddyri Lindargötu 48.

Þrjú neyðarskýli borgarinnar, Konukot og gistiskýlin við Lindargötu og Grandagarð, verða opnuð fyrr í dag, eða klukkan 14.00 vegna veðurofsans sem spáð er síðdegis.

Að líkindum skerðist þjónusta Frú Ragnheiðar vegna veðurs en hægt verður að hringja í síma 787 7123. Hjúkrunarfræðingur verður við símann í kvöld frá kl. 18-21.

Ef upp koma aðstæður sem bregðast þarf brátt við er ávallt öruggast að hringja í Neyðarlínuna, 112 (einn einn tveir).