Nemendaverðlaun skóla- og frístundaráðs afhent í Sæmundarskóla 

Skóli og frístund

""

Nemendaverðlaun  skóla- og frístundaráðs voru afhent við hátíðlega athöfn í Sæmundarskóla i dag, þriðjudaginn 9. júní 2020.

Einn nemandi eða nemendahópur í hverjum grunnskóla er tilnefndur og fær viðurkenningu. Verðlaunin voru nú afhent í átjánda skipti og eru veitt til nemenda í grunnskólum borgarinnar sem þykir skara fram úr í námi og starfi. Hver grunnskóli tilnefnir nemanda til þessara verðlauna. Verðlaunin eru í formi viðurkenningarskjals og bókar. Alls bárust 31 tilnefning að þessu sinni, frá grunnskólum í Reykjavík, um nemendur sem skara fram úr í námi, félagsfærni, virkni í félagsstarfi eða hafa sýnt frábæra frammistöðu á tilteknu sviði skólastarfs. Aldur þeirra nemenda sem tilnefndir voru í ár spannar árgangana frá 2.-10. bekkjar grunnskólans sem sýnir að nemendur á öllum aldri geta skarað fram úr og verið góðar fyrirmyndir.

Hægt var að tilnefna til verðlaunanna fyrir:

  • Góðan námsárangur, almennt eða í tiltekinni grein
  • Góðar framfarir í námi, almennt eða í tiltekinni grein
  • Virkni í félagsstarfi, að vera jákvæð fyrirmynd, sýna frumkvæði eða leiðtogahæfileika
  • Frábæra frammistöðu í íþróttum eða listum, s.s. skák, boltaíþróttum, sundi, frjálsum íþróttum, dansi, myndlist eða tónlist
  • Listsköpun eða tjáningu í skólastarfi, s.s. í myndlist, tónlist, leiklist, handmennt, dansi eða upplestri
  • Félagslega færni, samskiptahæfni og framlag til að bæta eða auðga bekkjaranda/skólaanda
  • Nýsköpun eða hönnun, s.s. smíði, hannyrðir eða tæknimennt.

Við athöfnina í Sæmundarskóla flutti Skúli Helgason formaður skóla- og frístundaráðs ávarp auk þess sem hann, Alexandra Briem og Egill Þór Jónsson í skóla- og frístundaráði afhentu nemendum verðlaunin.  Róbert Aron Garðarsson Proppé og Katrín Erlinda Þórðardóttir, fyrrum nemendur Sæmundarskóla, komu fram og fluttu tvö lög. Að lökum gafst tóm til að spjalla saman og njóta hressingar.

Sú hefð hefur skapast að veita verðlaunahöfum bókarverðlaun og hafa þær bækur sem hlotið hafa Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar eða verið tilnefndar, það árið yfirleitt orðið fyrir valinu. Í ár hlutu þrjár bækur barnabókaverðlaunin. Yngstu verðlaunahafarnir fengu bókina Vigdís, bókin um fyrsta konuforsetann eftir Rán Flygenring. Nemendur í 7. bekk fengu bókina Kjarval málarinn sem fór sínar eigin leiðir eftir Margréti Tryggvadóttur. Nemendur í 8. og 10. bekk fengu ýmist bókina Nornin eftir Hildi Knútsdóttur eða Villueyjar eftir Ragnhildi Hólmgeirsdóttur en þessar tvær unglingabækur voru tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur 2020.     

Eftirtaldir nemendur fengu Nemendaverðlaun skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur 2020;

  • Lára Katrín Alexandersdóttir, 10. bekk Austurbæjarskóla
  • Rebekka Rán Guðnadóttir, 10. bekk Árbæjarskóla
  • Pétur Atli Kárason, 7. bekk Ártúnsskóla
  • Kim Svanberg Heiðarsson, 10. bekk Breiðholtsskóla
  • Andri Snær Theódórsson, 10. bekk Dalskóla
  • Shkelzen Veseli, 10. bekk Fellaskóla
  • Anna Bíbí Wium Axelsdóttir, 10. bekk Foldaskóla
  • Bríet Stefanía Hermannsdóttir, 7. bekk Fossvogsskóla
  • Benedikt Vilji Magnússon, 10. bekk Hagaskóla
  • Hekla Sóley Sigurðardóttir, 7. bekk Hamraskóla
  • Van Huy Nguyen, 10. bekk Háaleitisskóla
  • Hekla Margrét Halldórsdóttir, 8. bekk Háteigsskóla
  • Benedikt Jens Magnússon, 10. bekk Hlíðaskóla
  • Sólbjörg Björnsdóttir, 10. bekk Hólabrekkuskóla
  • Sigrún María Birgisdóttir, 7. bekk Húsaskóla
  • Viktor Máni Halldórsson, 10. bekk Klettaskóla
  • Rakel Rut Kristjánsdóttir, 9. bekk Klébergsskóla
  • Ragnheiður Ugla Ocares Gautsdóttir, 10. bekk Landakotsskóla
  • Freyja Þöll Sigþórsdóttir, 10. bekk Laugalækjarskóla
  • Ísak Alvar Snædahl Agnarsson, 2. bekk Laugarnesskóla
  • Lovísa Rán Örvarsdóttir, 7. bekk Melaskóla
  • Alexander K. Bendtsen, 10. bekk Norðlingaskóla
  • Hafdís Eyja Vésteinsdóttir, 10. bekk Rimaskóla
  • Helga Hrund Ólafsdóttir, 7. bekk Selásskóla
  • Skúli Björn Ásgeirsson, 10. bekk Seljaskóla
  • Kolbeinn Heiðar Óskarsson, 9 ára bekk Skóla Ísaks Jónssonar
  • Herdís Pálsdóttir, 10. bekk Sæmundarskóla
  • Ásthildur Emelía Þorgilsdóttir, 10. bekk Tjarnarskóla
  • Frosti Andrason, 10. bekk Vogaskóla
  • Aníta Eik Kjartansdóttir, 10. bekk Vættaskóla
  • Quyen Tu Nguyen, 8. bekk Ölduselsskóla