Námskeið um Menningarmót - fjölbreytta menningarheima

Skóli og frístund Mannlíf

""
Verkefnið Menningarmót – fljúgandi teppi  er þverfagleg aðferð í starfi með börnum og fullorðnum þar sem leitast er við að varpa ljósi á styrkleika og fjölbreytta menningarheima hvers og eins. 
Fimmtudaginn 10. mars kl. 14-16 er boðið til opins námskeiðs um aðferðafræðina á bak við Menningarmót og verður það haldið í Kerhólum á 7. hæð í Borgartúni 12-14. 
 
Verkefnið Menningarmót – fljúgandi teppi  er þverfagleg aðferð í starfi með börnum og fullorðnum þar sem leitast er við að varpa ljósi á styrkleika og fjölbreytta menningarheima hvers og eins. Meðal markmiða er að þátttakendur geri sér ljóst að fjölbreytt menning, tungumál og áhugasvið mynda mikilvægt menningarlegt litróf í samfélaginu öllu. Verkefnið hefur verið innleitt í fjölmörgum leik -, grunn – og framhaldsskólum í Reykjavík frá árinu 2008.
 
Á námskeiðinu verður sagt frá hugmyndafræði verkefnisins ásamt aðferðum og reynslu á leik – og grunnskólastigi.
Heimasíða verkefnisins www.menningarmot.is verður einnig kynnt og þátttakendur fá að kynnast Menningarmóti af eigin raun.
Þátttakendur eru beiðnir um að taka með sér einhvern hlut sem er þeim mikilvægur (getur verið ljósmynd, bók, tónlist, ljóð eða annað).  
 
Námskeiðið er liður í samstarfi skóla – og frístundasviðs og Borgarbókasafnsins og tengist innleiðingu stefnu SFS um fjölmenningarlegt skóla- og frístundastarf, Heimurinn er hér..
 
Umsjón: Kristín R. Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar á Borgabókasafni.
 
Allir áhugasamir eru velkomnir.
Skráning: frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Nánari upplýsingar: kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is  s: 6181420