Næturakstur Strætó hefst um helgina

Samgöngur

""

Næturakstur Strætó hefst aðfaranótt laugardagsins 13. janúar en sex leiðir verða í þessum akstri. Leigubílstjórar geta ekki nýtt sér biðstöð strætisvagna við Lækjartorg (sérrein til suðurs) um helgar frá kl. 01-04 þessar nætur. 

Næturakstur Strætó hefst næstu helgi eða aðfararnætur 13. og 14. janúar. Sex leiðir munu almennt sinna næturakstri úr miðbæ Reykjavíkur aðfararnætur laugar- og sunnudaga. Leiðirnar munu aka á um það bil klukkutíma fresti eða frá klukkan 01:00 til um 04:30. Sjá nánari upplýsingar um næturakstur Strætó.

Næturaksturinn hefur það í för með sér að leigubílstjórar geta ekki nýtt sér biðstöð strætisvagna við Lækjartorg (sérrein til suðurs) um helgar frá kl. 01-04 eins og tíðkast hefur undanfarið. Leigubílar hafa áfram skilgreinda aðstöðu neðst í Hverfisgötu, í Aðalstræti og í Lækjargötu við Bernhöftstorfu.

Tengill

Kort - leigubílar

Næturstrætó