Miðborgin slær sitt fyrra met

Umhverfi Mannlíf

""

Íbúar í Miðborginni hafa slegið fyrra met sitt í kosningaþátttöku á www.hverfidmitt.is.  Í fyrra tóku 9,6% íbúa þátt, en núna hafa 9,7% greitt atkvæði í þessum kosningum um verkefni til framkvæmda á næsta ári.

Kosningu á www.hverfidmitt.is lýkur á miðnætti annað kvöld, fimmtudaginn 14. nóvember. Allir Reykvíkingar sem verða 15 ára á þessu ári og eldri geta kosið. Kosningaaldur var lækkaður í fyrra og er gert ráð fyrir mun meiri þátttöku þess hóps nú í ár.

Heildarkosningaþátttaka í  fyrra var 12,3% sem þá var töluverð auking frá árinu á undan þegar 10,9% íbúa í Reykjavík tóku þátt.  Kjörskrá kosninganna núna telur 108.134 Reykvíkinga og til að slá fyrra met þurfa 13.300 íbúar að kjósa.  Efst á kosningasíðunni kemur fram hve margir hafa kosið og má búast við að sjá þá tölu hækka hratt næstu klukkutímana því ávallt hefur verið mikil þátttaka síðasta sólarhringinn. (Þegar þetta er skrifað kl. 11.15 í dag höfðu 10.880 íbúar kosið).

Guðbjörg Lára Másdóttir, verkefnisstjóri fyrir Hverfið mitt, hvetur alla til að kjósa og stjörnumerkja sína uppáhalds hugmynd, því þannig fái hún tvöfalt vægi í talningu. Hún áréttar einnig að ekki þurfi að kjósa fyrir alla fjárhæðina sem birtist á vefnum. „Kjóstu einungis það sem þú raunverulega vilt sjá verða að veruleika í þínu hverfi,“ segir hún. Verkefnin sem kosin verða núna koma til framkvæmda á næsta ári.