Sumarsmiðjur fyrir grunnskólakennara í Reykjavíkurborg verða haldnar í Háteigsskóla, á Menntavísindasviði HÍ, Mixtúru og víðar 12. og 13. ágúst næstkomandi.
Boðið verður upp á fjölmörg spennandi námskeið og smiðjur en allar upplýsingar að finna á Menntastefnuvefnum.
Það er sérstaklega ánægjulegt að segja frá því að nú þegar hafa borist tæplega 900 skráningar.
Formlegur skráningarfrestur er liðinn en enn þá er tekið við skráningum á nokkur spennandi námskeið sem ekki eru þegar fullbókuð.
Missið ekki af þessu frábæra starfsþróunartækifæri.