Mesta íbúafjölgun í Reykjavík í tæp 30 ár

Framkvæmdir Mannlíf

""

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 2,4% árið 2017 eða tæplega 3000 manns.

Þetta kemur fram í tölfræði frá Hagstofu Íslands. Fjölgunin er sú mesta á einu ári í Reykjavík síðan 1988, þegar Grafarvogurinn var að byggjast upp.

Um er að ræða verulega breytingu frá því sem verið hefur undanfarna áratugi, sem hafa einkennst af fremur hófstilltum vexti. Fjölgunin er einnig vel yfir langtímaviðmiði aðalskipulags, þar sem gengið er út frá tæplega 1% meðalvexti á ári til ársins 2030.

Fjölgar mest á nýbyggingarsvæðum

Í einstökum hverfum er fjölgunin mest í Úlfarsárdal eða rúm 38% en þar hefur verið byggt mikið á undanförnum árum. Í Hamrahverfi í Grafarvogi fjölgar einnig um rúm 12% en þar skýrir uppbygging í Bryggjuhverfi fjölgunina en þar hafa bæst við  nýrra íbúða.  Íbúafjölgun í Bryggjuhverfinu sjálfu er tæp 30%.

Einnig verður veruleg íbúafjölgun í Norðurmýri eða rúmlega 7%, en innan þess hverfis eru meðal annars nýbyggingar í Smiðjuholt þar sem Búseti hefur byggt um 203 íbúðir.

Lítils háttar fækkun innan Hringbrautar

Íbúafækkun milli ára í rótgrónum hverfum heyrir til undantekninga, en fækkun getur verið viðbúin vegna hinnar almennu langtímaþróunar um fækkun í heimili. Það er einkum í eldri úthverfum, austan Elliðaáa, sem greina má fækkun milli ár. Undantekningin frá þessu er í Efra-Breiðholti en þar er óvenju mikil fjölgun.

Fækkun íbúa á svæðinu innan Hringbrautar er aðeins lítilsháttar, 0,07% í Gamla Vesturbænum en 0,34% í Austurbænum. Það er athyglisvert í ljósi þess að margar íbúðir hafa verið nýttar til útleigu ferðamanna en nýbyggðum íbúðum á svæðinu, sem teknar hafa verið í notkun og vega mögulega á móti áhrifum skammtímaleigunnar, fjölgar óverulega milli ára.

Haraldur Sigurðsson sérfræðingur á skrifstofu sviðsstjóra á umhverfis- og skipulagssviði tók saman.