Menningarnótt í Reykjavík 2021 aflýst

Covid-19 Mannlíf

""

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar ákvað á fundi sínum í morgun að aflýsa öllum viðburðum vegna Menningarnætur í Reykjavík sem halda átti hátíðlega 21. ágúst.

Eftir ítarlega skoðun og umræðu var einhugur í neyðarstjórn um ákvörðunina um að aflýsa fjölskylduhátíðinni vegna útbreiðslu Covid-19 smita í samfélaginu og óvissu sem ríkir um áhrif Delta afbrigðisins á börn, unglinga og aðra viðkvæma hópa.

„Við tókum þessa ákvörðun með hagsmuni allra borgarbúa að leiðarljósi. Það er mjög leitt að þurfa að aflýsa þessum frábæra degi aftur. En við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að stuðla að sem eðlilegustu lífi í borginni og órofinni þjónustu. Þar stendur efst að skólastarf fari fram með eins eðlilegum hætti og hægt er og að raska sem minnst þjónustu okkar við viðkvæma hópa, svo sem aldraða og fatlaða,“ segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs og staðgengill borgarstjóra um ákvörðun neyðarstjórnar í morgun. 

Fjölskylduhátíðin vinsæla Menningarnótt hefur verið haldin fyrsta laugardag eftir afmæli borgarinnar 18. ágúst frá 1996, nú með tveimur undantekningum árin 2020 og 2021.